Senda tólf hábyssur til viðbótar til Úkraínu

Hábyssurnar voru búnar til á síðasta ári vegna innrásarinnar í …
Hábyssurnar voru búnar til á síðasta ári vegna innrásarinnar í Úkraínu en skotfæri þeirra er allt að 40 kílómetrar. AFP/Sameer Al-Doumy

Frönsk yf­ir­völd ætla að senda Úkraínu­mönn­um tólf Ceas­ar-há­byss­ur til viðbót­ar við þær 18 sem Frakk­ar hafa nú þegar sent til lands­ins. 

Sebastien Lecornu, varn­ar­málaráðherra Frakk­lands, til­kynnti þetta á blaðamanna­fundi með Oleksí Resní­kov, varn­ar­málaráðherra Úkraínu, í Par­ís í dag. 

Lecornu sagði að fjár­magnið fyr­ir send­ing­una kæmi úr 200 millj­óna evra sjóði sem Frakk­ar settu upp fyr­ir send­ing­ar her­gagna til Kænug­arðs. 

Há­byss­urn­ar voru bún­ar til á síðasta ári vegna inn­rás­ar­inn­ar í Úkraínu en skot­færi þeirra er allt að 40 kíló­metr­ar. 

Há­byss­urn­ar tólf munu ber­ast Úkraínu­mönn­um á næstu vik­um, en fyrr í mánuðinum til­kynntu Dan­ir að þeir ætluðu að senda 19 há­byss­ur af sömu gerð til lands­ins. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert