Rúnar: Við nýttum bara ekki færin okkar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. ágúst 2020 21:10 Rúnar Kristinsson á hliðarlínunni fyrr á þessu tímabili. VÍSIR/DANÍEL
Rúnar Kristinsson - þjálfari Íslandsmeistara KR - var nokkuð sáttur með spilamennsku sinna manna í kvöld þrátt fyrir að liðið hafi tapað 2-1 á heimavelli fyrir FH þegar fótboltinn snéri aftur hér heima eftir hlé vegna kórónufaraldursins. Íslandsmeistararnir gáfu fá færi á sér og fengu nóg af góðum færum til að næla í stig eða þrjú. „Við nýttum bara ekki færin okkar, mér fannst við byrja leikinn vel en misstum aðeins móðinn þegar fór að líða á og misstum boltann illa. Unnum okkur inn í leikinn og sköpuðum nóg af færum til að vinna leikinn eða allavega ná í stig, náðum ekki að nýta færin og FH-ingarnir gerðu vel“ sagði Rúnar svekktur aðspurður hver væri ástæða þess að KR hefði ekki náð í stig á heimavelli en Íslandsmeistararnir fengu urmul af færum. KR missti þá Kristinn Jónsson og Kristján Flóka Finnbogason út af vegna meiðsla í síðari hálfleik og riðlaði það töluvert leik þeirra. „Slæmt að missa Kristinn út af. Pablo [Punyed] var nýkominn inn á því við vildum fá aðeins öðruvísi leikmann inn á miðjuna fyrir Finn Orra [Margeirsson]. Finnur var búinn að standa sig mjög vel og við vildum fara sækja öll þrjú stigin en svo fer Kristinn út af, Pablo fer í vinstri bakvörðinn og við þurfum að gera breytingu á okkar liði. Auðvitað truflar það alltaf eitthvað. FH gerir gott mark skömmu síðar og við náum ekki að jafna þó við höfum fengið nóg af tækifærum til þess.“ „Í upphafi síðari hálfleiks virtust menn aðeins vera að spara sig eins og það væri komin smá þreyta í mannskapinn enda ekki búnir að spila í tvær til þrjár vikur. Það sama á við um FH-ingana en mér fannst við aðeins þyngri en þeir á þessum kafla. Svo sýnum við það síðustu 20-25 mínúturnar að við áttum nóg inni. Pressuðum þá til baka, reyndum að jafna og fengum nóg af færum en eins og ég sagði þá náðum við ekki að nýta tækifærin okkar og þá fer svona.“ „Kristján fékk krampa aftan í kálfa held ég og Kristinn fékk högg á legginn. Það er kannski vont í 1-2 daga en hann er vonandi klár á þriðjudaginn [þegar KR mætir Celtic í undankeppni Meistaradeild Evrópu]. Við eigum samt nóg af leikmönnum til að fylla upp í þessar stöður en það er alltaf leiðinlegt þegar menn detta út, sérstaklega þegar við erum að byrja aftur eftir langa pásu,“ sagði Rúnar að lokum.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla KR Tengdar fréttir Logi Ólafs: Fyrst og fremst ánægja og gleði Logi Ólafsson var eðlilega sáttur með að næla í þrjú stig á Meistaravöllum er Pepsi Max deild karla snéri aftur. 14. ágúst 2020 20:50 Umfjöllun: KR - FH 1-2 | Daníel og Þórir afgreiddu Íslandsmeistarana Daníel Hafsteinsson skoraði mörk FH, í bæði skiptin eftir undirbúning Þóris Jóhanns Helgasonar, þegar liðið vann dísætan 2-1 útisigur á KR í fyrsta leiknum eftir hléið í Pepsi Max-deildinni í fótbolta. 14. ágúst 2020 19:50 Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Fleiri fréttir „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Víkingar fengu góða sumargjöf Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Sjá meira
Logi Ólafs: Fyrst og fremst ánægja og gleði Logi Ólafsson var eðlilega sáttur með að næla í þrjú stig á Meistaravöllum er Pepsi Max deild karla snéri aftur. 14. ágúst 2020 20:50
Umfjöllun: KR - FH 1-2 | Daníel og Þórir afgreiddu Íslandsmeistarana Daníel Hafsteinsson skoraði mörk FH, í bæði skiptin eftir undirbúning Þóris Jóhanns Helgasonar, þegar liðið vann dísætan 2-1 útisigur á KR í fyrsta leiknum eftir hléið í Pepsi Max-deildinni í fótbolta. 14. ágúst 2020 19:50
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti