Vill virkja eineltisráð betur og auka sýnileika þess Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. október 2020 06:35 Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, vill leggja aukna áherslu á eineltismál innan ráðuneytisins. Vísir/Vilhelm
Lilja Alfreðsdóttir, menntamálráðherra, ætlar að leggja aukna áherslu á eineltismál innan menntamálaráðuneytisins og virkja eineltisráð betur. Þá sé hún sem menntamálaráðherra ósátt við að barn þurfi að hætta í skólanum sínum vegna eineltis. Einelti sé mikil meinsemd og geti haft langtímaáhrif á framtíð fólks. Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við ráðherra. Umræða um eineltismál hefur verið mikil undanfarna daga eftir að Sigríður Elín Ásmundsdóttir, móðir drengs í 6. bekk í Sjálandsskóla, lýsti alvarlegu einelti sem sonur hennar varð fyrir í skólanum. Sigríður brá á það ráð að taka son sinn úr Sjálandsskóla. Fram kemur í Morgunblaðinu að Lilja hafi sett sig í samband við Sigríði. Þá hafi hún einnig rætt við forráðamenn í Sjálandsskóla. Auk þess að virkja betur fagráð eineltismála verður farið í aðgerðir í samvinnu við Vöndu Sigurgeirsdóttur, lektor við Háskóla Íslands, en hún hefur sérhæft sig í málaflokknum. Hlutverk eineltisráðsins er að veita skólasamfélaginu stuðning vegna eineltismála með leiðbeiningum, ráðgjöf og upplýsingagjöf. Þá er hægt að vísa málum þangað ef ekki tekst að leysa eineltismál á fullnægjandi hátt innan skólans eða sveitarfélagsins, eða vegna meints aðgerðarleysis sömu aðila. Eineltisráðið kom ekki að fyrrnefndu máli í Sjálandsskóla. Lilja segir að auka þurfi sýnileika ráðsins og kynna það betur. Til standi að gera það. „Ég vil að við getum styrkt kerfið okkar þannig að þessi mál fari í betri farveg. Við höfum sett á fót fagráð eineltismála inni í menntamálastofnun og þegar málin eru komin í öngstræti þá þarf fagráðið að koma að málinu. Mig langar að þróa þennan feril betur í samvinnu við skólasamfélagið og við foreldrasamfélagið,“ segir Lilja í Morgunblaðinu í dag.
Skóla - og menntamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira