Fjöldi barna í ótryggu húsnæði tvöfaldast milli ára Fanndís Birna Logadóttir skrifar 4. febrúar 2023 19:31 Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins. Vísir/Ívar Fannar Ríflega 400 börn búa við ótryggar húsnæðisaðstæður í Reykjavík og eru nánast tvöfalt fleiri en árið áður. Borgarfulltrúi í minnihlutanum segir ekki hægt að fela sig bakvið stöðuna í samfélaginu og kallar eftir meiri skynsemi af hálfu meirihlutans. Forgangsraða þurfi verkefnum í þágu fólksins en ekki í skreytingu torga.
Biðlistar eftir félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík hafa lengst talsvert en samkvæmt upplýsingum frá velferðarsviði borgarinnar voru 411 börn og 206 barnafjölskyldur á þeim lista í byrjun desember 2022, nánast tvöfalt fleiri en árið 2021, þegar 211 börn og 109 barnafjölskyldur voru á listanum. Nánast tvöfalt fleiri börn og barnafjölskyldur voru á biðlista í desember 2022 heldur en árið þar áður. Grafík/Sara Rut Árin þar áður virtust biðlistarnir styttast. Árið 2019 voru 260 börn og 153 barnafjölskyldur á biðlistanum og árið 2020 voru börnin orðin 201 og barnafjölskyldurnar 110. Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, segir þetta áfall og hefur kallað eftir því að þessi þróun verði skoðuð sérstaklega. Að hennar mati virðist ekkert eiga að gera í borginni. „Ég sé ekki nein plön, það er ekkert verið að tala um þetta. Við í Flokki fólksins erum sífellt að tala um þetta. Mér finnst viðbrögðin ekki vera mikil en hérna þurfum við að bregðast við. Auðvitað hefur ástandið verið erfitt í samfélaginu, það er auðvitað verðbólgan og Covid kom, en það er ekki alltaf hægt að fela sig bak við það. Nú þarf bara að endurskoða þetta allt saman,“ segir hún. Samkvæmt upplýsingum frá Velferðarsviði má ætla að hluti fjölgunarinnar sé tilkomin meðal annars vegna fjölda flóttamanna. Fjölgun varð einnig í hópi þeirra sem þáðu fjárhagsaðstoð til framfærslu milli ára, fjölgaði um 800 og voru 3200 í lok síðasta árs, þar af tæpur helmingur flóttamenn. Kolbrún segir að hver sú sem skýringin reynist vera sé það engin afsökun. „Það breytir engu, við berum ábyrgð á þessum hópi og að ef að þarna eru nýir Íslendingar, innflytjendur, þá er það auðvitað bara í okkar höndum að sjá til þess að það fólk fái öruggt húsnæði,“ segir Kolbrún. Spyr hvað meirihlutinn ætlar að gera Ljóst sé að þörfin verði sífellt meiri, óháð því hvaðan fólkið kemur, og því kallar Kolbrún eftir meiri skynsemi í fjármálastjórnun borgarinnar. „Við þurfum líka bara að horfa til þess að forgangsraða í þágu fólksins fyrst og fremst, en ekki í skreytingu torga eins og ég hef oft sagt. Síðan þarf meiri skilvirkni í rekstrinum og við í Flokki fólksins sjáum ekki að borgin sé rekin með skilvirkum hætti,“ segir Kolbrún. Bíða þurfi með það sem megi bíða og einblína á beina þjónustu við fólkið. „Við sjáum nákvæmlega hver staðan er, og þá spyr ég aftur þennan meirihluta sem er búinn að vera í hálft ár, aðeins öðruvísi en sá síðasti; hvað ætlar hann að gera í þessari stöðu?“
Börn og uppeldi Flóttafólk á Íslandi Reykjavík Borgarstjórn Fjölskyldumál Tengdar fréttir Móttaka flóttamanna sé ekki skammtímaverkefni Félagsmálaráðherra stefnir á að koma með frumvarp á haustmánuðum sem snýr að móttöku flóttamanna en engin slík löggjöf er til staðar. Áætlanir gera ráð fyrir að svipaður fjöldi flóttamanna komi til landsins í ár og í fyrra, eða allt að fimm þúsund manns. Fjögur sveitarfélög hafa skrifað undir samning við ríkið um móttöku flóttamanna en stærsta áskorunin er húsnæði. 11. janúar 2023 13:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Sjá meira
Móttaka flóttamanna sé ekki skammtímaverkefni Félagsmálaráðherra stefnir á að koma með frumvarp á haustmánuðum sem snýr að móttöku flóttamanna en engin slík löggjöf er til staðar. Áætlanir gera ráð fyrir að svipaður fjöldi flóttamanna komi til landsins í ár og í fyrra, eða allt að fimm þúsund manns. Fjögur sveitarfélög hafa skrifað undir samning við ríkið um móttöku flóttamanna en stærsta áskorunin er húsnæði. 11. janúar 2023 13:01