Seinka skoti stærsta geimsjónauka heims Kjartan Kjartansson skrifar 23. nóvember 2021 08:45 Tæknimenn í geimmiðstöð Evrópu í Kourou í Frönsku-Gvæjana taka JWST úr kassanum eftir að honum var siglt þangað í október. ESA/CNES/Arianespace Ákveðið hefur verið að seinka geimskoti James Webb-geimsjónaukans, þess stærsta í sögunni, um nokkra daga eftir uppákomu við undirbúning þess. Honum verður nú skotið á loft í fyrsta lagi tveimur dögum fyrir jól.
Til stóð að skjóta James Webb-sjónaukanum (JWST) út í geim með Ariane 5-eldflaug frá evrópsku geimmiðstöðinni í Frönsku-Gvæjana 18. desember. Þegar tæknimenn bjuggu sig undir að festa sjónaukann við nokkurs konar millistykki sem tengir hann við efra þrep eldflaugarinnar losnaði óvænt hosuklemma sem festir sjónaukann við millistykkið. Olli þetta titringi í sjónaukanum, að því er segir í tilkynningu frá evrópsku geimstofnuninni (ESA). Rannsóknarnefnd á vegum bandarísku geimvísindastofnunarinnar (NASA) fyrirskipaði frekari prófanir til að meta hvort að uppákoman hafi skemmt sjónaukann eða hluta hans. Ætlunin er að ljúka þeim prófunum fyrir lok þessarar viku. Vegna uppákomunnar hefur verið ákveðið að sjónaukanum verði skotið á loft í fyrsta lagi 22. desember. Enginn leið að gera við þegar hann er kominn út í geim JWST verður stærsti geimsjónaukinn í sögunni en spegill hans er 6,5 metrar að þvermáli. Til samanburðar er spegill Hubble-geimsjónaukans, sem JWST leysir af hólmi, 2,4 metra breiður. Geimskoti hans hefur ítrekað verið frestað, síðast árið 2018 en til stóð að skjóta honum á loft í júní það ár. Ólíkt Hubble, sem er á braut um jörðina, verður JWST komið fyrir í svonefndum Lagrange-punkti 2, um 1,5 milljón kílómetra frá jörðinni í átt frá sólinni. Það er um fjórföld vegalengdin á milli jarðarinns og tunglsins. Lagrange-punktur 2 er staður í geimnum þar sem þyngdarkraftur jarðar og sólar jafnast út. Þegar James Webb verður kominn þangað fylgir hann eftir árlegri sporbraut jarðar í kringum sólina. Ferðin að Lagrange-punktinum tekur fjórar vikur. Vegna fjarlægðarinnar verður engin leið að gera lagfæringar á sjónaukanum þegar hann er kominn á sinn stað. Hubble-geimsjónaukinn, sem var skotið á loft árið 1990, reyndist gallaður en þar sem hann var á braut um jörðu gátu geimfarar bandarískrar geimskutlu gert við hann.
Geimurinn Tækni Vísindi James Webb-geimsjónaukinn Tengdar fréttir Stefna á að skjóta upp stærsta geimsjónauka heims fyrir jól Geimstofnanir Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada hafa sammælst um að stefna að því að skjóta James Webb-geimsjónaukanum út í geim 18. desember. Hann verður stærsti geimsjónaukinn í sögunni. 8. september 2021 22:50 Vængir James Webb opnaðir á jörðinni í síðasta sinn Vísindamenn vinna nú að því að opna gyllta spegilvængi James Webb sjónaukans (JSWT) í síðast sinn á jörðu niðri. Næst þegar vængirnir opna verður það vonandi á sporbraut sólina. James Webb er stærsti og öflugasti geimsjónauki sem hefur verið smíðaður. 12. maí 2021 16:02 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Innlent Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Erlent Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Innlent Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Innlent Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Innlent Fleiri fréttir Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Sjá meira
Stefna á að skjóta upp stærsta geimsjónauka heims fyrir jól Geimstofnanir Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada hafa sammælst um að stefna að því að skjóta James Webb-geimsjónaukanum út í geim 18. desember. Hann verður stærsti geimsjónaukinn í sögunni. 8. september 2021 22:50
Vængir James Webb opnaðir á jörðinni í síðasta sinn Vísindamenn vinna nú að því að opna gyllta spegilvængi James Webb sjónaukans (JSWT) í síðast sinn á jörðu niðri. Næst þegar vængirnir opna verður það vonandi á sporbraut sólina. James Webb er stærsti og öflugasti geimsjónauki sem hefur verið smíðaður. 12. maí 2021 16:02