Mikill meðbyr með glænýrri tillögu um að merki Danakonungs verði fjarlægt Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 26. janúar 2022 22:10 Tillaga Björns Levís Gunnarssonar um að fjarlægja merki Kristjáns IX Danakonungs af Alþingishúsinu hefur fengið mikinn hljómgrunn í kvöld. Vísir/EPA Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur skilað inn þingsályktunartillögu þess efnis að forseta Alþingis verði falið að fjarlægja kórónu og merki Kristjáns IX Danakonungs af Alþingishúsinu.
Tíst Björns Levís í kvöld þar sem hann vakti athygli á þingsályktunartillögunni hefur vakið gríðarlega athygli. Líklega vegna þess að Íslendingar eru margir hverjir ansi pirraðir út í Dani sem köstuðu frá sér öruggum sigri gegn Frökkum í EM á handbolta í kvöld, sem varð til þess að Ísland komst ekki áfram í undanúrslit mótsins. #emruv pic.twitter.com/i7mO5JFC3f— Bjorn Levi (@_bjornlevi_) January 26, 2022 Reikna má því með að tillagan njóti töluverðs hljómgrunns á meðal þjóðarinnar, í kvöld í það minnsta, á meðan mestur pirringurinn situr enn í landsmönnum. Ekki er um grín að ræða en í samtali við Vísi staðfestir Björn Leví að hann hafi þegar sent tillöguna inn á skrifstofu Alþingis og reiknar hann með að henni verði dreift á þingi á morgun. Tillagan gerir ráð fyrir að í stað kórónu og merkis Kristjáns IX verði þess í stað sett viðeigandi merki íslenskrar þjóðar og þings. Þvert á það sem sumir gætu haldið er tillagan ekki lögð fram í pirringskasti yfir því að Dönum hafi láðst að gera Íslendingum greiða á EM, eða þeirri staðreynd að tveir Danir skipta með sér 1,3 milljörðum eftir Víkingalottó-útdrátt kvöldsins. Björn Leví skilaði tillögunni nefnilega inn í dag, löngu áður en þessir blautu sokkar skullu í andlitum Íslendinga. „Þetta er búið að sitja hjá mér í dálítinn tíma en það var einhvern vegin tilfinningin að þetta væri viðeigandi tími,“ segir Björn Leví í samtali við Vísi. „Maður fann ónotatilfinningu í dag og þá mundi ég eftir þessu og dreif mig í að skella þessu til skrifstofunnar,“ segir hann ennfremur. Sjálfur segist Björn Leví ekki hafa horft á leikinn. „Ég var búinn að lofa því að horfa ekki á leikinn því að alltaf þegar ég horfi þá tapa þeir.“ Ekki sá eini. „Þetta er meira hjá mér til þess að gera grín að hjátrúnni en það er ágætt að halda henni fyrir aðra stundum.“ Kóronan og merkin sem sést hér fyrir miðju Alþingishússins er það sem Björn Leví vill losna við.Vísir/Vilhelm Hann segir að honum finnist óþægilegt að hafa merki Kristjáns IX á þaki Alþingishússins. „Þetta hefur mallað í dágóðan tíma. Man nú ekki alveg tilefnið af hverju ég skáldaði þetta upp til að byrja með. Þetta er búið að vera óþægilegt í langan tíma,“ segir Björn Leví. „Merki Kristjáns IX hefði að sjálfsögðu átt að vera löngu búið að fjarlægja. Tillagan útskýrir sig að öðru leyti sjálf þar sem Alþingi Íslendinga starfar ekki í umboði danskrar krúnu,“ segir í rökstuðningi ályktunarinnar. Aðspurður um hvernig hann sjái fyrir sér að þingsályktunartillögunni muni reiða af segir Björn Leví að mögulega sé stuðnings að vænta úr óvæntri átt. „Án þess að nefna hver þá var ráðherra sem sagðist vilja vera meðflutningsmaður. Ég segi ekki hver,“ segir hann hlæjandi að lokum.
Alþingi Píratar Kóngafólk Styttur og útilistaverk Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent