„Ég hugsa að ég muni aldrei gleyma hljóðunum í börnunum“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 10. maí 2021 18:00 Sigríður Jónsdóttir og Magnús Kjartan Eyjólfsson berjast fyrir breytingum á verklaginu á Landspítalanum eftir að fólk missir barn á meðgöngu. Andrea Eyland Sigríður Jónsdóttir og Magnús Kjartan Eyjólfsson eignuðust andvana stúlku þriðjudaginn 27. apríl. Hún fékk nafnið Kolfinna Ögn.
Þau hafa síðustu daga gagnrýnt heilbrigðiskerfið harðlega fyrir viðbrögðin eftir að þeim var tilkynnt að barnið þeirra hefði dáið í móðurkviði. Eftir Sigga opnaði sig á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum um sína upplifun af heilbrigðiskerfinu hefur saga þeirra vakið hörð viðbrögð. Um helgina hafa margir foreldrar deilt sinni reynslu af fósturmissi og fæðingu andvana barns á samfélagsmiðlum og merkt Instagramminu Kviknar og #ögninmín. Þau Sigga og Maggi ræddu sína upplifun við Andreu Eyland í hlaðvarpinu Kviknar, sem kom inn á Vísi og aðrar efnisveitur í dag. Þáttinn má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: 20 - Ögnin mín Sigríður var rúmlega hálfnuð með meðgönguna þegar hún fékk þær fréttir á föstudegi að ekki finnist hjartsláttur hjá barninu. Fæðingarlæknir sagði henni að það væri nýskeð, um nóttina eða fyrr þennan morgunn. Hún var hissa að fá að heyra að hún ætti að fara heim og mæta aftur eftir helgi til að framkalla fæðingu. Innan við hálftíma síðar var hún alein hágrátandi úti á bílaplani Landspítalans við Hringbraut að bíða eftir Magga sem var að koma frá heimili þeirra á Laugarvatni. Engin áfallahjálp var boðin og henni fannst óhugsandi að bíða með að framkalla fæðinguna svo þetta var einstaklega erfið upplifun. Lífið sýnir ljótar hliðar Sunnudaginn áður en fæðingin var framkölluð, þurfu þau Sigga og Maggi að segja eldri systkinunum frá missinum en þau áttu fjögur börn fyrir. „Þær komu bara kátar og glaðar inn og mér leið í alvörunni eins og ég væri að leiða þær í gildru,“ segir Sigga um þetta erfiða augnablik. Hún segir að þau hafi ekki fengið neinar leiðbeiningar á sjúkrahúsinu um það hvernig best væri að ræða þetta við börn. „Ég hugsa að ég muni aldrei gleyma hljóðunum í börnunum þegar ég stundi þessu upp. Það eina sem ég gat sagt var, þið vitið að lífið getur oft verið ofboðslega ljótt og sýnir á sér ljótar hliðar. Við höfum alveg fengið að sjá þær og við erum að sjá það aftur núna. Við fórum til læknisins eins og þið vitið og þá kom í ljós að hjartað í henni Kolfinnu er hætt að slá. Ég mun aldrei gleyma öskrunum. Þarna þurfti bara einhver að vinna vinnuna sína og hjálpa okkur, af því að ég var ekki í ástandi til að segja þeim þetta. Maggi var það ekki.“ Eftirfylgni nauðsynleg Þau segja að þetta samtal sé eitt það erfiðasta sem þau hafi átt. „Að horfa upp á þær svona niðurbrotnar, þetta ýtir bara enn frekar undir það að þetta úrelta kerfi þarf breytingu núna,“ segir Sigga og Maggi tekur undir. „Það væri rosalega gott að fá einhver tæki eða tól í hendurnar.“ Þau leggja áherslu á að þessi umræða snúist ekki um einstaka persónur, heldur heilbrigðiskerfið, verkferlanna og þær brotalamir sem eru til staðar hér á landi. „Ég er á því að þetta sé að hjálpa okkur í okkar sorgarferli,“ segir Maggi. Að hans mati þarf að vera einhver eftirfylgni með foreldrum í þessari stöðu, í nokkra daga eða að minnsta kosti fyrsta sólarhringinn eftir missinn. „Að sjá til þess að fólk, sé svona nokkurn veginn komið í öruggar hendur. Hverjar sem þær hendur eru.“ Þau segjast tilbúin að ræða þessi mál við hvern sem er tilbúinn til að reyna að gera breytingar á þessu verklagi. Þetta einlæga viðtal við parið má heyra í heild sinni spilaranum hér ofar í fréttinni.
Kviknar Landspítalinn Heilbrigðismál Frjósemi Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið „Nútíminn er trunta“ Lífið Seiðandi glæsikvendi á lausu Lífið Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Lífið Eltihrellirinn í Baby Reindeer íhugar að leita réttar síns Bíó og sjónvarp Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Lífið Fleiri fréttir Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veruleika Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“ Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu Baldurs og Felix-fáni falur Menningarunnendur nutu veðurblíðunnar í miðborginni Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Allt það besta úr þáttaröðinni Öll þessi ár Fyrstu kaupendur hafi þessi atriði í huga Rikki G svaraði kallinu og lét draum Ólafs Jóhanns rætast Sjá meira