Valur að fá leikmann frá Svíþjóð

Anna Rakel Pétursdóttir
Anna Rakel Pétursdóttir mbl.is/Árni Sæberg

Netmiðillinn Akureyri.net fullyrðir að knattspyrnukonan Anna Rakel Pétursdóttir sé á heimleið frá Svíþjóð. 

Í fréttinni kemur fram að Anna Rakel sé á leið í Val en hún lék með Þór/KA hér heima. Anna Rakel hefur verið síðustu tvö keppnistímabil í Svíþjóð. Þar hefur hún leikið með Linköping og Uppsala. 

Anna Rakel er 22 ára gömul og uppalin í KA og lék síðar í mörg ár með Þór/KA. Varð hún Íslandsmeistari með liðinu 2017. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert