Kristján Þór heitir stuðningi við bændur í riðubaráttunni Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. október 2020 12:44 Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Vísir/vilhelm
Ríkið mun greiða bændum, sem skera þurfa niður fé sitt vegna riðuveiki í Skagafirði, bætur og kostnað vegna riðunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í dag. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gerði á ríkisstjórnarfundi í morgun grein fyrir stöðunni sem upp er komin í Skagafirði vegna staðfestrar riðuveiki í Tröllaskagahólfi. Riðuveiki greindist 22. október á bænum Stóru- Ökrum 1 og Matvælastofnun hefur undanfarna daga kortlagt frekari útbreiðslu veikinnar. Haft er eftir Kristjáni Þór í tilkynningu að fréttirnar séu mikið reiðarslag. Hann segir ljóst að tjónið sé mikið og tilfinningalegt. „Ég hef gefið út skýr fyrirmæli til ráðuneytisins og Matvælastofnunar um að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að styðja við bændur á svæðinu í gegnum þetta áfall,“ segir Kristján Þór. Matvælastofnun hefur undanfarna daga unnið að sýnatöku á svæðinu. Fyrstu niðurstöður gefa til kynna að sterkur grunur er um að riðuveiki sé til staðar í sauðfé á þremur búum en endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir. Ekki hefur greinst riðuveiki á þessu svæði í Tröllaskagahólfi frá árinu 2000. Heildarfjöldi gripa sem skera þarf niður liggur heldur ekki fyrir en sterkar vísbendingar eru um að hann verði umtalsverður. „Í ljósi þess hefur Matvælastofnun óskað eftir að Umhverfisstofnun liðsinni stofnuninni um lausnir við förgun. Þá liggur fyrir að kostnaður ráðuneytisins vegna málsins mun verða töluverður en ríkið mun greiða bætur og kostnað vegna riðuveikinnar til eigenda búfjár þar sem niðurskurður er nauðsynlegur,“ segir í tilkynningu.
Landbúnaður Riða í Skagafirði Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Dýraheilbrigði Skagafjörður Akrahreppur Tengdar fréttir Fleiri sýni tekin í Tröllaskagahólfi en ekki grunur um smit á fleiri bæjum Enn er óvíst hvort grunur sem vaknaði um riðusmit á fleiri bæjum í Tröllaskagahólfi hafi reynst á rökum reistur. 26. október 2020 12:05 „Alltaf hægt að halda í vonina en ég held að hún sé engin“ Bóndinn á Grænumýri í Skagafirði þar sem sterkur grunur leikur á riðusmiti hefur enga von um að endanleg niðurstaða sýnatöku leiði annað í ljós. 24. október 2020 16:23 „Þetta er harmleikur“ Bóndi á bænum Grænumýri á Tröllaskaga, sem sér fram á að þurfa að farga hátt í 1100 fjár vegna riðu sem greindist í hrúti á bænum, segir það harmleik. Samfélagið sé lamað eftir þennan mikla skell. 23. október 2020 20:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Erlent Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Innlent Fleiri fréttir Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sjá meira
Fleiri sýni tekin í Tröllaskagahólfi en ekki grunur um smit á fleiri bæjum Enn er óvíst hvort grunur sem vaknaði um riðusmit á fleiri bæjum í Tröllaskagahólfi hafi reynst á rökum reistur. 26. október 2020 12:05
„Alltaf hægt að halda í vonina en ég held að hún sé engin“ Bóndinn á Grænumýri í Skagafirði þar sem sterkur grunur leikur á riðusmiti hefur enga von um að endanleg niðurstaða sýnatöku leiði annað í ljós. 24. október 2020 16:23
„Þetta er harmleikur“ Bóndi á bænum Grænumýri á Tröllaskaga, sem sér fram á að þurfa að farga hátt í 1100 fjár vegna riðu sem greindist í hrúti á bænum, segir það harmleik. Samfélagið sé lamað eftir þennan mikla skell. 23. október 2020 20:01