„Fólk er að hugsa um heilsuna í ræktinni og er ekki að fara í sleik á einhverjum karaoke bar“ Stefán Árni Pálsson skrifar 22. október 2020 15:31 Egill Einarsson er ekki svo sáttur með stöðuna á líkamsræktarstöðvum landsins.
Einkaþjálfarinn Egill Einarsson ræddi við þáttastjórnendur Brennslunnar í morgun og var farið yfir ástandið í líkamsræktarstöðvum landsins vegna kórónuveirunnar. „Ég get verið á skrifstofunni en þetta er helvíti rólegt meðan líkamsræktarstöðvarnar eru lokaðar en vonandi verða þetta bara tvær vikur í viðbót,“ segir Egill Einarsson á FM957 í morgun. „Fólk virðist ekki vera að hreyfa sig mikið þegar þessar stöðvar eru lokaðar. Það er helvíti þreytt að sprikla heima í stofu til lengri tíma. Ég sá það í fyrstu lokuninni að fólk nennti þessu í viku að hoppa heima á gólfinu en það verður fljótt mjög þreytt. Ég sé það bara í þessari lokun að fólk nennir þessu ekkert, fer bara í sófann og mætir þegar það opnar aftur.“ Hann segir að fólk eigi almennt mjög erfitt með mataræðið þegar það er heima allan daginn. „Ég hef aldrei séð fólk koma jafn illa út úr mælingum og á þessu ári. Þú átt alveg að geta gert hörkuæfingar með eigin líkamsþyngd en fólki finnst það bara leiðinlegt. Nú má fólk vera í einhverjum hóptímum en ekki fara í ræktina. Þetta er allt saman mjög sérstakt, en vonandi eru bara einhverjar tvær vikur í þetta.“ Hnefaleikastöð er ekki eins og venjuleg líkamsræktarstöð Hann býst ekkert endilega við að fólk flykkist í ræktina þegar banninu verður aflétt. „Það er notla önnur hver sófakartafla landsins í einhverri herferð gegn líkamsræktarstöðvum. Ég get ekki opnað Vísi þá er einhver trúður kominn að tala um gymmið. Það gleymist svolítið að þessi smit eru úr hnefaleikastöðinni, ekki líkamsrækt. Fólk þekkir greinilega ekki muninn á hnefaleikastöð og líkamsrækt. Líktu bara saman tennisvelli og gymmi. Fólk er bara með frómas í hausnum, því miður. Svo labba þrjú þúsund manns hingað inn í Sporthúsið á dag og það er ekki eitt smit.“ Egill segir að fólk hafi almennt verið mjög duglegt við það að þrífa vel eftir sig í Sporthúsinu og sprittað vel. „Ég er með mikið af fólki sem eru að glíma við andleg veikindi og lyfin þeirra er bara líkamsræktin, hreyfa sig, borða hollt og það þarf að meta kostina og galla áður en þú lokar bara á líkamsrækt. Svo er líka betra að vera í góðu formi ef þú færð þessa ógeðslegu veiru. Þórólfur horfir væntanlega bara á þessa hnefaleikastöð sem rækt, en hann er bara að gera sína vinnu og mér finnst hann standa sig mjög vel og ég er aðdáandi. En fólk er að hugsa um heilsuna í ræktinni og er ekki að fara í sleik á einhverjum karaoke bar.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Brennslan Líkamsræktarstöðvar Mest lesið Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna Lífið „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búin að senda þessa línu“ Makamál Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Lífið „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ Lífið 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Lífið Hugsar oft til fyrstu ástarinnar vegna ástandsins í Íran Lífið Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Lífið Gallstasi á meðgöngu: „Ég grátbað um að ég yrði sett af stað“ Áskorun „Það er einmanalegt að missa móður“ Lífið Ætlar hvorki að hætta að vinna né opna kaffihús Lífið Fleiri fréttir Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Vandamálaráðuneytið únefndi hinn fimmtán ára Viðar til sigurs Hugsar oft til fyrstu ástarinnar vegna ástandsins í Íran Krakkatían: Celebs, sumar og forseti Íslands Sveitarstjóri og sauðfjárbóndi fóru á kostum Hvetur fólk til að nota sólarvörn eftir krabbameinsgreiningu Metmæting á tískusýningu útskriftarnema LHÍ Mynd ársins af palestínskum flóttamanni Ætlar hvorki að hætta að vinna né opna kaffihús Milljónir hafa horft á stikluna fyrir Snertingu Karl konungur snýr aftur úr veikindaleyfi Fréttatía vikunnar: Þyrlur, forsetaframbjóðendur og skemmdarverk „Það er einmanalegt að missa móður“ Trúlofuðust á gjörgæslunni eftir bílslys á Íslandi Ellý snýr aftur vegna fjölda áskorana Ætlað að auka umræðu og sýnileika leiðsöguhunda Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Fágæt og falleg eign við Flókagötu Aron passaði varla inn í bílinn Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Grínari selur íbúð í Vesturbænum Sophia Bush kemur út úr skápnum „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Sjá meira