Leitar sameiginlegra flata um framtíð hálendisvega Kristján Már Unnarsson skrifar 11. maí 2021 23:23 Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri á málþingi Vegagerðarinnar um þjóðvegi á hálendinu. Egill Aðalsteinsson Vegagerðin leitar nú málamiðlana milli þeirra sjónarmiða hvort ráðast eigi í uppbyggingu hálendisvega með bundnu slitlagi eða hvort halda eigi þeim sem mest óbreyttum sem jeppavegum.
Niðurgrafnir malarslóðar með óbrúuðum ám er sú mynd sem við höfum af íslenskum hálendisvegum. En þeir eru líka til uppbyggðir og malbikaðir, eins og á virkjanasvæði Þjórsár og Tungnaár og á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Dæmi um malbikaðan hálendisveg má finna norðan Heklu.Stöð 2/Björn Sigurðsson Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um málþing sem Vegagerðin efndi til í dag um hvert eigi að stefna og kallaði til fulltrúa ólíkra sjónarmiða. Í hópi framsögumanna var til dæmis þingmaðurinn Njáll Trausti Friðbertsson sem flytur þingmál um að byggja upp Kjalveg svo hann verði fær stóran hluta ársins. Það líst Tryggva Felixsyni, formanni Landverndar, ekki á. Hann segir of mikið aðgengi og of mikla umferð geta spillt hálendinu. Tryggvi Felixson, formaður Landverndar.Egill Aðalsteinsson „Okkur finnst ekki að hálendið eigi að vera þjóðleið á milli byggðarlaga. Þar eigum við að fylgja vegakerfinu í dag. En við getum lagfært þá vegi sem eru í dag,“ segir formaður Landverndar. Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar, vill sjá helstu hálendisvegi eins og Kjöl og Sprengisand byggða upp. „Ég held að það eigi að vera stefna þessarar þjóðar að gera það, já. Þá eru fleiri sem geta notið þess. Þetta dregur að. Þetta er bara umhverfissjónarmið líka. Að koma í veg fyrir utanvegaakstur, minna slit á bílum, fer betur með fólkið, og svo framvegis,“ segir oddvitinn. Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar.Egill Aðalsteinsson „Við þurfum að vernda það sem er raunverulega hjarta landsins fyrir spjöllum. Þá þurfum við að vanda okkur mjög vel. Þá er engin hefðbundin vegagerð sem gengur upp,“ segir formaður Landverndar. Menn töluðu um þvottabretti og þjóðvegaryk. „Eins og ástandið er núna, það bara gengur ekki,“ segir Helgi oddviti. „Við ætlum að vinna úr þessu og draga þetta fólk betur til okkar og ræða málin,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri. „Þó að sjónarhornin séu sannarlega ólík þá eru eiginlega meiri sameiginlegir fletir heldur en ég átti von á,“ segir Bergþóra. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Vegagerð Samgöngur Hálendisþjóðgarður Skipulag Umhverfismál Tengdar fréttir Bullandi tækifæri í þjóðgarði ef hálendisleiðir verða greiðar Ein hálendasta bújörð landsins, Svartárkot í Bárðardal, er orðin lifandi kennslustofa háskóla um búsetu fólks á jaðri hins byggilega heims. Þar segjast bændur sjá bullandi tækifæri í því að gera hálendið að einum þjóðgarði, að því gefnu að það verði ekki lokað og læst. 16. nóvember 2020 22:06 Góðir hálendisvegir eru besta umhverfisverndin Trausti Valsson, prófessor í skipulagsfræði, segir að stórkostlegt yrði að fá uppbyggðan Sprengisandsveg með varanlegu slitlagi, það yrði umhverfisvernd. 19. apríl 2015 21:40 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira
Bullandi tækifæri í þjóðgarði ef hálendisleiðir verða greiðar Ein hálendasta bújörð landsins, Svartárkot í Bárðardal, er orðin lifandi kennslustofa háskóla um búsetu fólks á jaðri hins byggilega heims. Þar segjast bændur sjá bullandi tækifæri í því að gera hálendið að einum þjóðgarði, að því gefnu að það verði ekki lokað og læst. 16. nóvember 2020 22:06
Góðir hálendisvegir eru besta umhverfisverndin Trausti Valsson, prófessor í skipulagsfræði, segir að stórkostlegt yrði að fá uppbyggðan Sprengisandsveg með varanlegu slitlagi, það yrði umhverfisvernd. 19. apríl 2015 21:40