Eriksen sendi samherjum sínum skilaboð af sjúkrabeði og sagði frammistöðu þeirra stórkostlega Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. júní 2021 11:30 Leikmenn danska liðsins þakka fyrir stuðninginn eftir leikinn gegn Belgíu. getty/Jonathan Nackstrand Christian Eriksen hrósaði samherjum sínum í danska landsliðinu fyrir frammistöðu þeirra gegn Belgíu á EM í gær og sagði hana stórkostlega. Eriksen dvelur á ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn eftir að hafa fengið hjartaáfall í leik Danmerkur og Finnlands á laugardaginn. Eriksen er á batavegi og fylgdist með félögum sínum gegn Belgíu, liðinu í efsta sæti styrkleikalista FIFA, í gær. Danir byrjuðu leikinn af gríðarlega miklum krafti og komust yfir strax á 2. mínútu þegar Yussuf Poulsen skoraði. Á 10. mínútu var leikurinn stöðvaður og allir viðstaddir á Parken klöppuðu fyrir Eriksen. Kevin De Bruyne, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, kom inn á sem varamaður í hálfleik og breytti gangi mála í leiknum. Hann lagði upp jöfnunarmark Belga fyrir Thorgan Hazard á 55. mínútu og skoraði svo sigurmarkið tuttugu mínútum fyrir leikslok. Belgía vann, 1-2, og tryggði sér þar með sæti í sextán liða úrslitunum. Von Danmerkur á að komast þangað er hins vegar afar veik. Eftir leikinn sagði Martin Braithwaite að Eriksen hefði sent samherjum sínum í danska liðinu skilaboð á Whatsapp og hrósað þeim fyrir frammistöðuna. „Hann skrifaði í hópspjallið okkar að við hefðum verið frábærir. Ég las skilaboðin á leiðinni til búningsherbergja,“ sagði Braithwaite. Hann sagði jafnframt að UEFA hefði nánast neytt Dani til að klára leikinn gegn Finnum á laugardaginn. „Við hefðum unnið leikinn, ég er viss um það. En við vorum neyddir til að spila eftir það sem gerðist. Það er ótrúlegt að við séum ekki komnir með stig en ég hef það á tilfinningunni að við munum komast áfram,“ sagði Braithwaite. Danir mæta Rússum í lokaumferð riðlakeppninnar á mánudaginn á meðan Belgar mæta Finnum. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990. EM 2020 í fótbolta Hjartastopp hjá Christian Eriksen Tengdar fréttir Sjáðu mörkin þegar Belgar kláruðu Dani á Parken Danir þurftu á sigri að halda þegar Belgar mættu í heimsókn á Parken í Kaupmannahöfn á Evrópumótinu í knattspyrnu í dag. Danir byrjuðu með látum en innkoma Kevin De Bruyne skilaði Belgum 2-1 sigri. 17. júní 2021 18:05 Bjargráður verður græddur í Eriksen Christian Eriksen, danski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu sem fékk hjartastopp í leik Dana og Finna á Evrópumótinu síðustu helgi, mun fara í aðgerð og fá græddan í sig svokallaðan bjargráð. 17. júní 2021 10:08 Mest lesið Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Fótbolti Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu Golf Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik Körfubolti „Þetta eru tvö dúndurlið“ Körfubolti „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Körfubolti Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Fótbolti Fleiri fréttir Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu „Þetta einvígi er rétt að byrja“ „Þetta eru tvö dúndurlið“ „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Martin og félagar einum sigri frá undanúrslitum Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Guðni Valur Norðurlandameistari Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Sjá meira
Eriksen dvelur á ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn eftir að hafa fengið hjartaáfall í leik Danmerkur og Finnlands á laugardaginn. Eriksen er á batavegi og fylgdist með félögum sínum gegn Belgíu, liðinu í efsta sæti styrkleikalista FIFA, í gær. Danir byrjuðu leikinn af gríðarlega miklum krafti og komust yfir strax á 2. mínútu þegar Yussuf Poulsen skoraði. Á 10. mínútu var leikurinn stöðvaður og allir viðstaddir á Parken klöppuðu fyrir Eriksen. Kevin De Bruyne, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, kom inn á sem varamaður í hálfleik og breytti gangi mála í leiknum. Hann lagði upp jöfnunarmark Belga fyrir Thorgan Hazard á 55. mínútu og skoraði svo sigurmarkið tuttugu mínútum fyrir leikslok. Belgía vann, 1-2, og tryggði sér þar með sæti í sextán liða úrslitunum. Von Danmerkur á að komast þangað er hins vegar afar veik. Eftir leikinn sagði Martin Braithwaite að Eriksen hefði sent samherjum sínum í danska liðinu skilaboð á Whatsapp og hrósað þeim fyrir frammistöðuna. „Hann skrifaði í hópspjallið okkar að við hefðum verið frábærir. Ég las skilaboðin á leiðinni til búningsherbergja,“ sagði Braithwaite. Hann sagði jafnframt að UEFA hefði nánast neytt Dani til að klára leikinn gegn Finnum á laugardaginn. „Við hefðum unnið leikinn, ég er viss um það. En við vorum neyddir til að spila eftir það sem gerðist. Það er ótrúlegt að við séum ekki komnir með stig en ég hef það á tilfinningunni að við munum komast áfram,“ sagði Braithwaite. Danir mæta Rússum í lokaumferð riðlakeppninnar á mánudaginn á meðan Belgar mæta Finnum. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 í fótbolta Hjartastopp hjá Christian Eriksen Tengdar fréttir Sjáðu mörkin þegar Belgar kláruðu Dani á Parken Danir þurftu á sigri að halda þegar Belgar mættu í heimsókn á Parken í Kaupmannahöfn á Evrópumótinu í knattspyrnu í dag. Danir byrjuðu með látum en innkoma Kevin De Bruyne skilaði Belgum 2-1 sigri. 17. júní 2021 18:05 Bjargráður verður græddur í Eriksen Christian Eriksen, danski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu sem fékk hjartastopp í leik Dana og Finna á Evrópumótinu síðustu helgi, mun fara í aðgerð og fá græddan í sig svokallaðan bjargráð. 17. júní 2021 10:08 Mest lesið Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Fótbolti Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu Golf Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik Körfubolti „Þetta eru tvö dúndurlið“ Körfubolti „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Körfubolti Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Fótbolti Fleiri fréttir Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu „Þetta einvígi er rétt að byrja“ „Þetta eru tvö dúndurlið“ „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Martin og félagar einum sigri frá undanúrslitum Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Guðni Valur Norðurlandameistari Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Sjá meira
Sjáðu mörkin þegar Belgar kláruðu Dani á Parken Danir þurftu á sigri að halda þegar Belgar mættu í heimsókn á Parken í Kaupmannahöfn á Evrópumótinu í knattspyrnu í dag. Danir byrjuðu með látum en innkoma Kevin De Bruyne skilaði Belgum 2-1 sigri. 17. júní 2021 18:05
Bjargráður verður græddur í Eriksen Christian Eriksen, danski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu sem fékk hjartastopp í leik Dana og Finna á Evrópumótinu síðustu helgi, mun fara í aðgerð og fá græddan í sig svokallaðan bjargráð. 17. júní 2021 10:08