Bregðast þurfi við brottkasti en einnig ræða aðferðir Fiskistofu Vésteinn Örn Pétursson skrifar 19. júlí 2021 19:31 Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda. Egill Aðalsteinsson Formaður Landssambands smábátaeigenda segir að brottkast sé stærra vandamál í sjávarútvegi en margir hafi hingað til haldið fram. Hann segir að eftirlitsaðferðir Fiskistofu verði að vera til umræðu þegar leitað er að lausnum við vandanum.
Um helgina greindi fréttastofa frá því að Fiskistofa hefði svipt bát veiðileyfi í tvær vikur vegna stórfellds brottkasts. Það er í fyrsta sinn sem bátur er sviptur veiðileyfi vegna brottkasts eftir að stofnunin hóf eftirlit með drónum í janúar. Síðan þá hefur brottkastmálum fjölgað mikið. Fiskistofa hefur óskað eftir samráði við sjávarútvegsráðuneytið, Landssamband smábátaeigenda og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi um úrbætur. Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda segir það liggja í hlutarins eðli að grípa þurfi til aðgerða. „Það er búið að setja kíki fyrir blinda augað í þessum málum í langan tíma. Brottkast er náttúrulega alþjóðlegt vandamál í fiskveiðum og einhvern veginn höfum við í gegnum síðustu árin verið að telja okkur trú um það á Íslandi að þetta sé ekkert vandamál hér,“ segir Arthur. Gagnrýnir eftirlitsaðferðir Fiskistofu Arthur segist hins vegar kominn á þá skoðun að það sé ansi langt frá sannleikanum og telur augljóst að aukið eftirlit Fiskistofu hafi varpað frekara ljósi á umfang brottkasts íslenskra skipa. Hann hefur þó verið gagnrýninn á eftirlitsaðferðir stofnunarinnar. „Samkvæmt mínum lesskilningi þá er þessi aðferðafræði sem Fiskistofa hefur notað hingað til miklu líkari því að verið sé að njósna um menn, en að stunda rafrænt eftirlit. Þetta er eitt af því sem þarf að taka á.“ Hann segir ýmsar ástæður geta legið að baki því að brottkast er jafn mikið og raun ber vitni. „Ég er þeirrar skoðunar að fiskveiðikerfi þar sem mönnum er úthlutað í kílóum beri með sér mjög sterkan hvata til þess, sérstaklega þegar veiðiheimildir eru takmarkaðar, að menn fari að sortera það sem komið er með í land,“ segir Arthur.
Sjávarútvegur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira