Örvunarbólusetning ekki orðin virk hjá tveimur sem þurftu á gjörgæslu Árni Sæberg skrifar 24. janúar 2022 18:48 Enginn með virka örvunabólusetningu hefur þurft á gjörgæslu. Vísir/Vilhelm Tveir hafa þurft að leggjast inn á gjörgæslu eftir að hafa þegið örvunarskammt bóluefnis við Covid-19. Annar þeirra lagðist inn degi eftir örvun og hinn um viku eftir örvun, því teljast þeir ekki örvunarbólusettir í skilningi rannsóknarhóps Landspítala.
Greint var frá því í gær að enginn hefði þurft á gjörgæslu eftir örvunarbólusetningu, að því er segir í niðurstöðum rannsóknarhóps Landspítala. Í frétt Morgunblaðsins segir hins vegar að tveir einstaklingar hafi þurft að leggjast inn á gjörgæslu eftir örvunarskammt. Hildur Helgadóttir, verkefnastjóri farsóttarnefndar á Landspítala staðfestir það í samtali við Vísi. Hún segir annan þeirra hafa lagst inn í nóvember, einungis einum degi eftir að hafa þegið örvunarskammt. Þá hafi hinn lagst inn þann 1. desember en verið örvunarbólusettur þann 23. nóvember. Almennt er talið að örvunarskammtur verði ekki virkur fyrr en fjórtán dögum eftir bólusetningu. Til að mynda taka reglur um sóttkví þríbólusettra ekki gildi fyrr en að fjórtán dögum liðnum. Niðurstaða rannsóknarhóps standi Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspítala, segir Covid-19 rannsóknarhóp Landspítala hafa farið yfir gögn sín í dag í kjölfar ábendinga um að tveir hafi lagst inn eftir örvunarbólusetningu. Eftir yfirferð gagna sé niðurstaða hópsins sú sama og í gær, að enginn með virka örvunarbólusetningu hafi þurft að leggjast inn á gjörgæslu. Hann segir hópinn munu gera grein fyrir því ef nánari rannsóknir bendi til annarar niðurstöðu og að markmið hópsins sé að rannsaka hver áhrif bólusetninga séu á innlagnartíðni.
Bólusetningar Landspítalinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Sjá meira