112 smit greindust innanlands

Alls greindust 117 smit í gær.
Alls greindust 117 smit í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

112 greindust innanlands með kórónuveirusmit í gær, þar af voru 65 í sóttkví. Auk þess greindust 5 á landamærunum.

Alls eru núna 1.775 í einangrun og 2.327 í sóttkví. Eins og áður um helgar þá teljast þessar tölur sem bráðabirgðatölur.  

Fjöldi PCR-sýna sem tekin voru í gær kemur fram á covid.is þegar heimasíðan verður uppfærð aftur á morgun.   

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert