Segir American Idol hafa verið upphafið að hnignun samfélagsins

Whoopi Goldberg er ekki hrifin af raunveruleikaþáttum.
Whoopi Goldberg er ekki hrifin af raunveruleikaþáttum. AFP

Leik­kon­an Whoopi Gold­berg fer ekki fögr­um orðum um raun­veru­leikaþátt­inn American Idol. Tel­ur hún sjón­varps­söng­keppn­ina vera upp­hafið að hnign­un sam­fé­lags­ins, því hann hvetji fólk til að dæma aðra.

Gold­berg kom með þess­ar yf­ir­lýs­ing­ar í spjallþætt­in­um The View, en hún er einn af meðstjórn­end­um hans. Lýs­ir hún því að sem sam­fé­lag elsk­um við að horfa á þætti sem snú­ast um það að dæma fólk og með því sé sam­fé­lagið á barmi hnign­un­ar. Gold­berg árétt­ar þó að hún sé að tala um American Idol á meðan þátt­ur­inn var sýnd­ur á sjón­varps­stöðinni Fox, á ár­un­um 2002 og 2016.

Gold­berg hef­ur ekki held­ur mikl­ar mæt­ur á öðrum raun­veru­leikaþátt­um. Seg­ir hún þátt­araðir eins og Real Hou­sewi­ves, sem tekn­ar eru upp í mis­mun­andi borg­um í Banda­ríkj­un­um, í raun af­bök­un á raun­veru­leik­an­um sem láti fólki líða eins og það sé að gera eitt­hvað rangt í líf­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Meyja

Sign icon Það er til lítils að þvæla um hlutina fram og aftur endalaust. Nú skaltu hætta að spóla í forinni og leita þér nauðsynlegrar aðstoðar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Hern­gren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Meyja

Sign icon Það er til lítils að þvæla um hlutina fram og aftur endalaust. Nú skaltu hætta að spóla í forinni og leita þér nauðsynlegrar aðstoðar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Hern­gren