Hefur skilað tillögum um breyttar aðgerðir en telur þær ekki verða jafn áhrifaríkar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. apríl 2021 11:18 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna í dag. Almannavarnir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað heilbrigðisráðherra tillögum um breyttar aðgerðir á landamærunum eftir að Landsréttur vísaði niðurstöðu héraðsdóms um ólögmæti sóttvarnahúsaskyldu frá í gær. Mikilvægt sé að auka eftirlit með fólki sem fari í heimasóttkví við komuna til landsins.
Þetta kom fram á upplýsingafundi um Covid-19 faraldurinn rétt í þessu. Þórólfur útlistaði ekki hvað felst í tillögunum en sagði þær ekki mundu verða eins áhrifaríkar og að skylda fólk frá hááættusvæðum í sóttvarnarhús. Þó vonaðist hann til þess að þær myndu skila tilætluðum árangri. Hann sagði tillögurnar ekki útiloka að stjórnvöld leituðu áfram leiða til breytinga á sóttvarnarlögum. Þegar hann svaraði spurningum blaðamanna viðurkenndi Þórólfur að það væru vonbrigði að lagastoð fyrir umræddri reglugerð hefði ekki verið fyrir hendi. Hann sagði sóttvarnaaðgerðir þó alls ekki í uppnámi en ef fleiri brestir yrðu á þá gæti farið svo. Fram kom á fundinum að frá því að reglur voru hertar 25. mars síðastliðinn hafa 79 greinst innanlands, 57 í sóttkví og 22 utan sóttkvíar. Í öllum tilvikum reyndist um breska afbrigðið að ræða. Segir mikilvægt að auka eftirlit Þórólfur hefur sjaldan tjáð sig um innihald minnisblaða sinna með beinum hætti áður en heilbrigðisráðherra hefur tekið þau til skoðunar. Hann var spurður að því á fundinum hvaða möguleikar væru fyrir hendi varðandi aðgerðir á landamærum sem stendur. „Það er bara mjög margt hægt að gera,“ sagði Þórólfur. „Það er til dæmis hægt að skerpa á reglum um sóttkví í heimahúsi og skýra það betur hvaða skilyrði húsnæðið þarf að uppfylla og hvaða skyldur fólk í sóttkví þarf að uppfylla. Og hugsanlega setja þá í sóttvarnahús sem ekki geta uppfyllt þetta.“ Þá væri hægt að auka eftirlit með fólki sem er í heimasóttkví á einhvern máta. „Það er hægt að skerpa á eftirliti á landamærunum og fylgja betur eftir í hvernig húsnæði fólk er að fara.“ Þórólfur sagði ekki ljóst hvernig eftirlit yrði aukið með fólki í sóttkví. Til þess þyrfti aukinn mannafla og allt að vera innan þeirra marka sem lög og reglugerðir leyfi. En mikilvægt væri að eftirlit yrði aukið.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Fleiri fréttir Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Sjá meira