Allt of margir í mínu liði í dag sem eru ekki nógu góðir Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. maí 2021 21:15 Halldór Jóhann Sigfússon var ósáttur við leik sinna manna í kvöld. Halldór Jóhann Sigfússon var eðlilega ósáttur við leik sinna manna í kvöld, en Selfyssingar fengu Valsmenn í heimsókn í Hleðsluhöllina. Lokatölur 31-26, Valsmönnum í vil, og Halldór segir að liðinu hafi skort einbeitingu. „
Þeir spila ekki vörn fyrstu mínúturnar og við erum komnir í 9-2 eða eitthvað svoleiðis en svo fara þeir bara að slást við okkur,“ sagði Halldór eftir leikinn. „Mér fannst þeir fá að komast upp með ansi harkaleg brot, Alexander fer tvisvar út af í byrjun og ég held að við séum með svipað margar brottvísanir en ég gat ekki séð það á leiknum að harkan á milli liðana hafi verið svipuð. Mér fannst þeir bara fá að komast upp með það.“ Halldór segir að sínir menn hafi gefið eftir og ekki verið nógu einbeittir. „Við gáfum bara eftir og vorum lélegir í því. Við hefðum átt að taka miklu betur á móti þeim og ég er mjög ósáttur með að fá á okkur 31 mark. Ég held að það sé það mesta sem við höfum fengið á okkur í deildinni í vetur.“ „Við missum bara einbeitingu og gerum einföldu hlutina alveg afskaplega illa í dag á meðan þeir nýta sér alla sína styrkleika og gera það vel.“ Selfyssingar náðu sjö marka forskoti snemma leiks en köstuðu því fljótt frá sér. „Það er alveg ljóst að það sem strákarnir gerðu vel á fyrstu tíu mínútunum hljóta þeir að geta gert jafn vel á næstu 50. Ég veit ekki hvort menn hafi bara slakað á eða hvað. Ég trúi því nú varla.“ „Við vorum bara að gera illa. Við vorum að hlaupa allt of mikið með boltann og við erum ekki að hreyfa hann nóg. Þeir eru að hlaupa mikið út úr vörninni og við vorum ekki að ná að skila boltanum frá okkur. Við vorum svolítið kærulausir og bara ekki nærri því nógu aggressívir. Það verður að segjast eins og er og það eru bara allt of margir í mínu liði í dag sem eru ekki nógu góðir.“ „Auðvitað erum við með unga stráka sem eru að stíga sín fyrstu skref og allt það á móti góðu og rútíneruðu Valsliði en mér finnst samt að við eigum að geta gert miklu betur á stórum köflum í leiknum.“ Selfyssingar fara norður á Akureyri þar sem þeir mæta Þórsurum næsta sunnudag. Halldór segir að liðið þurfi að gera betur til að eiga möguleika á að ná einu af efstu fjórum sætum deildarinnar. „Eins og við höfum alltaf sagt þá tökum við bara einn leik í einu. Við náðum góðum sigri úti í Eyjum og það hefði svo sem átt að gefa okkur sjálfstraust til að spila allavega varnarleikinn betur í dag. Þetta er svolítið okkar saga í vetur að þegar við lendum í „blackouti“ í sókninni þá lendum við líka í því í vörninni.“ „Við eigum það til að missa einbeitingu þegar það gerist og það er klárlega það sem gerðist í dag. Á báðum endum vallarins missum við bara einbeitingu í langan, langan tíma.“
UMF Selfoss Valur Olís-deild karla Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Sjá meira