Arnar Gunnlaugs byrjaði viðtalið eftir leikinn á því að öskra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2021 10:30 Arnar Gunnlaugsson í viðtalinu við Gunnlaug Jónsson eftir leikinn í gær. Skjámynd/S2 Sport Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, var tekinn í viðtal strax eftir sigurinn á KR á Meistaravöllum í gær og þetta viðtal bætist í hóp margra góðra sem hafa verið tekin við Arnar.
Víkingum tókst að landa sigri í leiknum og tryggja sér þar með toppsæti deildarinnar fyrir lokaumferðina um næstu helgi. Ingvar Jónsson varði víti frá KR í uppbótartíma leiksins og dramatíkin var ógurleg á lokasekúndunum. Leikurinn var varla búinn þegar Gunnlaugur Jónsson var búinn að taka Arnar Gunnlaugsson í viðtal í útsendingu Stöð 2 Sport og það er óhætt að segja að þá hafi tilfinningarnar flætt frá þessum litríka þjálfara. Pepsi Max Stúkan sýndi viðtalið og ræddi síðan um það á eftir. Það vakti athygli að æsingurinn var svo mikill að Arnar byrjaði viðtalið á því að öskra. „Ég bara vúúú. Þetta var rosalegt. Ég sagði þér fyrir leikinn að það myndi eitthvað gerast í lokin,“ sagði Arnar og benti síðan á leikmenn sína fagna með mögnuðum stuðningsmönnum sínum. „Sjáðu þetta. Þetta er eitthvað fáránlegt handrit. Þetta er ótrúlegt,“ sagði Arnar. „Ég er búinn að vera í þessum leik í mörg ár en þetta var eitthvað allt annað,“ sagði Arnar „Við töluðum um það í hálfleik að halda haus. Mér fannst fyrri hálfleikurinn flottur en menn voru greinilega þungir á sér eftir bikarleikinn. Við börðumst og börðumst. Það hefur einhvern veginn allt gengið upp,“ sagði Arnar. Klippa: Pepsi Max Stúkan: Viðtalið við Arnar Gunnlaugsson eftir dramatískan sigur á KR „Við megum fagna núna en svo bara fókus. Þetta er ekki alveg búið en fókus, fókus, fókus. Þetta er eitthvað það rosalegasta sem ég hef lent í og ferillinn minn er búinn að vera langur. Þetta var geggjað,“ sagði Arnar. „Bæði lið eiga skilið að vinna þessa deild því bæði lið eru búin að vera frábær. Við erum komnir aðeins með yfirhöndina en við þurfum bara að ná tökum á okkar tilfinningum í vikunni, æfa vel og vera einbeittir eins og við erum búnir að vera í allt sumar. Þá klárum við þetta,“ sagði Arnar. „Arnar talaði um að þeir þyrftu að ná stjórn á tilfinningum sínum í vikunni. Er það ekki bara hárrétt metið,“ spurði Guðmundur Benediktsson sérfræðinga sína þegar strákarnir í Pepsi Max Stúkunni fengu boltann aftur inn í myndverið. „Jú, jú, þeir þurfa helst að gera það bara strax. Það er ekkert í húsi þeir fá ekkert fyrir það að vera á toppnum eftir þessa umferð. Ég myndi halda að fókusinn á næsta leik hæfist í síðasta lagi í fyrramálið,“ sagði Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Pepsi Max Stúkunnar. „Hann náði stjórn á tilfinningum sínum fljótlega því byrjaði hann viðtalið á því að öskra. Réttilega. Þetta er leikur tilfinninga og þú verður að sýna tilfinningar þegar þú ferð í gegnum svona dramatík. Þú væri ómennskur ef þú myndir ekki sýna tilfinningar þá,“ sagði Reynir Leósson, sérfræðingur Pepsi Max Stúkunnar. Það má sjá þetta tilfinningaríka viðtal og umræðuna í Stúkunni á eftir hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max stúkan Víkingur Reykjavík Mest lesið „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Íslenski boltinn Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Fótbolti Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Enski boltinn Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Fótbolti Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fótbolti Segja vinslit hjá Tiger Woods og Rory McIlroy Golf Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Enski boltinn „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Fótbolti Dortmund fær meira fyrir að tapa en vinna úrslitaleikinn Fótbolti Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Sjá meira