UEFA rannsakar meinta spillingu og mútugreiðslur Barcelona Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar 25. mars 2023 14:30 Knattspyrnufélagið Barcelona er svo gott sem búið að vinna 1. deildina á Spáni í ár, en 4 ár eru liðin frá þeirra síðasta deildarmeistaratitli. Endurreisn félagsins gerist þó í skugga ásakana um mútur og spillingu. Getty Knattspyrnusamband Evrópu hefur hafið rannsókn á meintri spillingu og mútugreiðslum knattspyrnufélagsins Barcelona. Félagið hefur verið ákært fyrir að hafa greitt valdamiklum dómara andvirði 1.000 milljóna íslenskra króna til að tryggja sér hagstæða dómgæslu á 17 ára tímabili.
Með níu fingur á bikarnum Þrátt fyrir að enn séu 12 umferðir og tveir og hálfur mánuður eftir í spænsku 1. deildinni, er hægt að slá því föstu að Barcelona verður spænskur meistari í vor. Það lá ljóst fyrir, má segja, eftir sigur yfir erkifjendunum í Madrid um síðustu helgi. Barcelona hefur 12 stiga forskot og svo mikið forskot hefur engu liði tekist að vinna upp þegar svo skammt er til mótsloka. Alla vega ekki það sem af er öldinni. Það má segja að titillinn sé langþráður í höfuðborg Katalóníu, en liðið hefur ekki unnið deildina síðan 2019, en fátítt er að svo langt líði á milli titla hjá stórveldinu. Heil fjögur ár. Meistarar í skjóli ásakana um spillingu En að þessu sinni má segja að berin séu dálítið súr. Yfir liðinu liggur nú kolsvart spillingarský, eitt það stærsta sem menn hafa lengi séð í spænskum fótbolta. Klúbburinn er sakaður um að hafa greitt varaformanni dómaranefnd spænska knattspyrnusambandsins 7,3 milljónir evra, andvirði meira en eins milljarðs íslenskra króna á 17 ára tímabili, á milli 2001 og 2018. Maðurinn heitir José María Enriquez Negreira og „Negreira-hneykslið“ skyggir á flest annað í spænsku samfélagi þessi dægrin. Segja greiðslurnar hafa verið fyrir munnlega ráðgjöf Stjórnendur Barcelona fullyrða að þetta séu ráðgjafagreiðslur, ekkert er hins vegar til skriflegt um meinta ráðgjöf, ekki nema von segja stjórnendurnir, þetta var nefnilega bara munnleg ráðgjöf. Ákæruvaldið telur hins vegar að peningarnir hafi verið reiddir af hendi til að tryggja sér gott veður hjá dómurum á leikjum Barcelona. UEFA hefur rannsókn á ásökununum Á fimmtudag ákvað svo UEFA, knattspyrnusamband Evrópu að hefja sjálfstæða rannsókn á málinu og segir að félagið eigi yfir höfði sér bann í Evrópukeppnum ef ásakanirnar eigi við rök að styðjast. Hins vegar gætu afleiðingarnar á Spáni orðið litlar sem engar. Samkvæmt spænskum lögum þá fyrnast mál af þessu tagi á þremur árum og þar sem síðasta meinta mútugreiðslan átti sér stað árið 2018, fyrir 5 árum gæti allt heila svindleríið, ef sök sannast, verið fyrnt.
Fótbolti Spánn UEFA Spænski boltinn Mest lesið Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn NFL tekur ekki undir umdeild ummæli Butker Sport McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Ég táraðist smá“ Sport „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Fleiri fréttir Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Sjá meira