Elvar drjúgur í tapi

Elvar Örn Jónsson átti góðan leik fyrir Skjern.
Elvar Örn Jónsson átti góðan leik fyrir Skjern. AFP

Elvar Örn Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir Skjern þegar liðið tapaði með níu marka mun fyrir Aalborg í dönsku úrslitakeppninni í handknattleik í Álaborg í kvöld.

Leiknum lauk með 41:32-sigri Aalborg en Anders Eggert var markahæstur í liði Skjern með tíu mörk.

Aalborg leiddi með einu marki í hálfleik, 18:17, en náði fimm marka forskoti þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka og lét forystuna aldrei af hendi eftir það.

Aalborg er í öðru sæti 2. riðils úrslitakeppninnar með fjögur stig, stigi minna en Holstebro, en tvö efstu lið riðilsins komast áfram í undanúrslit úrslitakeppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert