Ný rannsókn segir stafræn samskipti verri en engin samskipti Árni Sæberg skrifar 26. júlí 2021 08:04 Betra væri að þetta fólk gæti hist í raunheimum. Pollyana Ventura/Getty Samskipti við ættingja og vini í gegnum fjarfundabúnað ollu því að margt eldra fólk fann fyrir auknum einmanaleika. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á andlegri heilsu fólks í heimfaraldrinum í Bretlandi og Bandaríkjunum.
The Guardian greindi frá rannsókninni í morgun. Margt eldra fólk hélt sambandi við ættingja og vini í gegnum fjarfundabúnað þegar samkomutakmarkanir komu í veg fyrir samskipti í raunheimum til þess að forðast félagslega einangrun. Rannsóknin, sem er ein sú fyrsta sem metur áhrif samskipta milli heimila á andlega heilsu í heimsfaraldri Covid-19, bendir hins vegar til að margir eldri en 60 ára hafi fundið fyrir meiri einsemd og langtíma geðraskana vegna stafrænna samskipta. „Við vorum hissa að sjá að eldri manneskja sem átti einungis stafræn samskipti í samkomubanninu fann fyrir meiri einmanaleika og langtíma geðröskunum en eldri manneskja sem átti ekki nein samskipti yfir höfuð,“ segir Dr. Yang Hu, meðhöfundur skýrslunnar sem birtist í Frontiers in Sociology á mánudag. „Við bjuggumst við að stafræn samskipti væru betri en algjör einangrun en það virðist ekki vera raunin þegar kemur að eldra fólki,“ bætir hann við. Hu segir að rót vandans sé að eldra fólki finnist stressandi að læra á nýja tækni sem þarf til að eiga fjarsamskipti. Hann segir þó að jafnvel þeim sem vanir séu tækninni finnist of mikil notkun hennar vera stressvaldur. Þá segir hann að mikil notkun fjarfundabúnaðar geti orsakað kulnun. Rannsóknin greindi gögn frá rúmlega 6500 manns yfir sextugu. Mikið samræmi var í niðurstöðunum yfir allan hópinn. Vísindamennirnir sem framkvæmdu rannsóknina segja hana benda til þess að nauðsynlegt sé að undirbúa eldra fólk fyrir aukin stafræn samskipti áður en önnur eins staða kemur upp líkt og í faraldrinum. Þá segja þeir að nauðsynlegt sé að finna leiðir til að viðhalda samskiptum í raunheimum þrátt fyrir neyðarástand.
Bretland Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Fleiri fréttir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Sjá meira