Vorum sjálfum okkur verstir þegar upp er staðið Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. janúar 2021 21:35 Guðmundur var ekki sáttur með þann fjölda mistaka sem íslenska liðið gerði í dag. EPA-EFE/Khaled Elfiqi Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, var ekki sáttur með allan þann fjölda mistaka sem íslenska landsliðið gerði er það tapaði fyrir Portúgal í fyrsta leik liðanna á HM í handbolta í kvöld.
Leiknum lauk með tveggja marka sigri Portúgala en Guðmundur var á því að íslenska liðið hefði verið sjálfum sér verst í kvöld. Hann ræddi við Einar Örn Jónsson á RÚV að leik loknum. „Við gerum of marga tæknifeila í sókninni, alls fimmtán talsins og það gengur ekki upp. Þeir gera aðeins sjö og í svona jöfnum leik þá gengur það ekki upp. Við förum með dauðafæri á mikilvægum kafla í leiknum og fórum ekki nægilega vel með þau hraðaupphlaup sem við fengum“ sagði Guðmundur um ástæður tapsins í kvöld og hélt svo áfram. „Við vorum sjálfum okkur verstir þegar upp er staðið. Við náðum upp markvörslu í síðari hálfleik og fengum möguleika til að snúa þessu við. Við náðum hins vegar ekki að nýta tækifærin þegar þau komu, hvort sem það var yfirtala eða hraðaupphlaup. Við vorum ítrekað að reyna troða boltanum inn á línu í vonlausar stöður,“ bætti landsliðsþjálfarinn við. Aðspurður hvort það væri ef til vill jákvætt að liðið hefði aðeins tapað með tveggja marka mun þrátt fyrir öll þessi mistök þá játti Guðmundur því. Pirrar mann aðallega að sjá þennan fjölda af mistökum „Við vissum að þetta yrði 50/50 leikur og til að vinna svona leik þarf einfaldlega meira að ganga upp. Mér fannst hik í mönnum þrátt fyrir að við höfum byrjað vel og það var grimmd í þessu í upphafi. Við fórum of snemma að koma okkur í vondar stöður og henda boltanum rá okkur.“ „Við gerðum óvenju mörg mistök sem andstæðingurinn nýtti sér, þar fannst mér munurinn liggja í kvöld. Það má svo sem segja að sé styrkur að tapa með tveggja marka mun gegn þessu sterka liði þrátt fyrir öll þessi mistök. Nú þurfum við að halda áfram en það er allt mögulegt í þessu.“ „Við erum rétt að byrja og eins og ég segi þá pirrar það mann aðallega að sjá þennan fjölda af mistökum. Það er ekki hægt að leyfa sér slíkt á svona móti. Við þurfum að fara yfir þetta og gera okkur klára í næsta verkefni sem er gegn mjög öflugum liðum. Þau spila óhefðbundið, eru mjög aggressíf og það er ljóst að báðir leikir verða erfiðir,“ sagði Guðmundur að lokum. Næsti leikur Íslands er gegn Alsír þann 16. janúar. Sá hefst klukkan 19.30.
Handbolti HM 2021 í handbolta Tengdar fréttir Leik lokið: Portúgal - Ísland 25-23 | Enn tapar Ísland fyrsta leik á HM Ísland varð að sætta sig við tap gegn Portúgal, 25-23, í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi, í þriðja leik liðanna á átta dögum. 14. janúar 2021 20:54 Bjarki Már: Hundleiðinlegt og tilfinningin súr Bjarki Már Elísson var markahæstur Íslendinga í tapinu fyrir Portúgölum, 25-23, á HM í Egyptalandi í dag. Hann var að vonum svekktur í leikslok. 14. janúar 2021 21:23 Þetta hafði Twitter að segja um tapið gegn Portúgal Ísland mætti Portúgal í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta sem nú fer fram í Egyptalandi. Þetta var þriðja viðureign liðanna á stuttum tíma en nú höfðu Portúgalir betur, lokatölur 25-23 og tap staðreynd í fyrsta leik Íslands á HM. 14. janúar 2021 21:16 Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Körfubolti HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Körfubolti Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Körfubolti Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Sjá meira
Leik lokið: Portúgal - Ísland 25-23 | Enn tapar Ísland fyrsta leik á HM Ísland varð að sætta sig við tap gegn Portúgal, 25-23, í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi, í þriðja leik liðanna á átta dögum. 14. janúar 2021 20:54
Bjarki Már: Hundleiðinlegt og tilfinningin súr Bjarki Már Elísson var markahæstur Íslendinga í tapinu fyrir Portúgölum, 25-23, á HM í Egyptalandi í dag. Hann var að vonum svekktur í leikslok. 14. janúar 2021 21:23
Þetta hafði Twitter að segja um tapið gegn Portúgal Ísland mætti Portúgal í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta sem nú fer fram í Egyptalandi. Þetta var þriðja viðureign liðanna á stuttum tíma en nú höfðu Portúgalir betur, lokatölur 25-23 og tap staðreynd í fyrsta leik Íslands á HM. 14. janúar 2021 21:16