Sport

Ís­lensku stelpurnar með mestu reynsluna í bar­áttunni um sæti á heims­leikunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir og Anníe Mist Þórisdóttir hafa allar komist á verðlaunapall á heimsleikunum, þar af hafa Annie og Katrín unnið tvívegis.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir og Anníe Mist Þórisdóttir hafa allar komist á verðlaunapall á heimsleikunum, þar af hafa Annie og Katrín unnið tvívegis. Vísir/eyþór

Undanúrslitamótin fyrir heimsleikana í CrossFit standa nú yfir og þar er barist um laus sæti á heimsleikunum í haust. Þangað vilja margir komast en fáir ná alla leið enda samkeppnin mjög mikil.

Undanúrslitamótið fyrir austurhluta Norður-Ameríku fór fram um síðustu helgi og um næstu helgi er komið að vesturhlutanum. Þar keppir Katrín Tanja Davíðsdóttir en allir hinir Íslendingarnir sem keppa í meistaraflokki og komust alla leið í undanúrslitin keppa í undanúrslitamóti Evrópu sem fer fram í Berlín.

Athygli vekur hvað Ísland er áberandi þegar tekið er saman hvaða keppendur á undanúrslitamótunum hafa mesta reynslu af heimsleikunum á ferlinum fyrir árið í ár.

Hjá konunum skipa nefnilega íslenskar CrossFit konur fjögur af fimm efstu sætunum yfir þær reynslumestu í undanúrslitunum í ár.

Ekki nóg með það heldur eru þær Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir þær einu sem hafa orðið heimsmeistarar í CrossFit af þeim sem standa eftir.

Tia-Clair Toomey, heimsmeistari undanfarinna sex ára, er ekki með í ár þar sem hún var að eignast sitt fyrsta barn. Katrín Tanja er sú sem vann síðast á undan Toomey en það var árið 2016.

Anníe Mist Þórisdóttir er í efsta sætinu yfir reynsluboltana en hún á möguleika á því að komast á sína tólftu heimsleika í einstaklingskeppni.

Katrín Tanja er í öðru sæti en hún getur tryggt sig inn á sína tíundu heimsleika. Báðar hafa þær komist margoft á verðlaunapallinn, Anníe Mist sex sinnum og Katrín fjórum sinnum.

Bandaríska konan Brooke Wells stingur sér upp á milli íslensku kvennanna á toppnum en hún hefur keppt átta sinnum á heimsleikum.

Þuríður Erla Helgadóttir hefur verið með undanfarin ár og alls sjö sinnum á ferlinum.

Sara Sigmundsdóttir er síðan í fimmta sætinu en hún hefur sex sinnum keppt á heimsleikunum. Sara hefur ekki verið með undanfarin ár, en hún missti af 2021 tímabilinu vegna meiðsla og komst ekki inn á heimsleikana í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×