Omíkron setur okkur í biðstöðu með samkomutakmarkanir Sunna Sæmundsdóttir skrifar 6. desember 2021 12:11 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað heilbrigðisráðherra minnisblaði með tillögum að næstu aðgerðum. Vísir/Vilhelm Sóttvarnalæknir telur ekki mikið svigrúm til tilslakana þegar núgildandi samkomutakmarkanir renna úr gildi á miðvikudag vegna óvissu um omíkron afbriðið. Niðurstöður rannsókna um virkni bóluefna gagnvart því eigi að liggja fyrir á næstunni. 101 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær.
Meirihluti þeirra sem greindust í gær voru utan sóttkvíar, eða 62 af hundrað og einum. Tuttugu og fjórir liggja inni á Landspítlanum og það fjölgaði á gjörgæslu yfir helgina þar sem nú eru fimm og þar af fjórir í öndunarvél. Sóttvarnalæknir hefur skilað heilbrigðisráðherra minnisblaði með tillögum að næstu aðgerðum sem verða líklega kynntar eftir ríkisstjórnarfund á morgun þar sem núgildandi samkomutakmarkanir renna úr gildi á miðvikudag. Hann telur minna svigrúm fyrir tilslakanir vegna óvissu sem fylgir omíkron afbrgiðinu. „Ég held að það setji okkur aðeins í biðstöðu. Það væri óvarlegt að fara í miklar tilslakanir og lenda svo í því að fá þetta nýja afbrigði algjörlega í bakið,“ segir Þórólfur Guðnason. Búast má við að Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fari yfir nýtt minnisblað sóttvarnalæknis á ríkisstjórnarfundi á morgun.vísir/Vilhelm Þrettán hafa greinst með omíkron hér á landi. Þar af eru tólf bólusettir og tveir hafa auk þess fengið örvunarskammt. Þórólfur segir of fáa hafa smitast til þess að hægt sé að draga ályktanir um virkni bóluefna eða örvunarskammts gegn afbrigðinu en unnið er að rannsóknum. „Það munu væntanlega koma niðurstöður úr því um næstu helgi eða í næstu viku,“ segir Þórólfur. Enginn úr hópi þeirra sem hafa smitast af afbrigðinu hér á landi er alvarlega veikur. Þórólfur segir of snemmt að segja hvort það valdi vægari einkennum þrátt fyrir að það hafi verið í umræðunni. „Það var líka talað um delta afbrigðið þannig þegar það byrjaði. Það var líka talað um þetta þannig þegar faraldurinn byrjaði. Fyrstu dagana voru menn að velta fyrir sér hvort þetta væri nokkuð eitthvað. Svo fór þetta að koma hægt og bítandi. Þannig ég held að það sé ekki ráðlegt að vera fullyrða neitt eins og staðan er núna.“ Örvunarskammtar virðast að minnsta kosti virka almennt afar vel samkvæmt tölfræði sem hefur verið birt á vefsíðu covid. „Þar kemur glöggt í ljós að örvunarskammturinn veitir um það bil níutíu prósent meiri vernd en skammtur tvö hjá fullorðnum.“ Hér má sjá mun á nýgengni miðað við bólusetningu.covid.is Um þriðjungur þeirra sem eru nú í einangrun eru börn. Þórólfur segir sömu tölfræði sýna að grunnbólusetning þeirra veiti betri vernd en hjá fullorðnum og enn er því ekki verið skoða örvunarskammta fyrir þau. Bólusetning barna undir tólf ára aldri er hins vegar enn til skoðunar. „Við erum búin að vera ræða það við ýmsa sérfræðinga og fara í gegnum það og hvernig framkvæmdin gæti orðið. En það hefur ekkert endanlega verið ákveðið.“ Hvenær verður tekin ákvörðun? „Bara fljótlega myndi ég halda,“ segir Þórólfur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira