Banaslys í malarnámu í Þrengslunum Kolbeinn Tumi Daðason og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa 22. október 2020 17:06 Banaslysið varð í nótt. Karlmaður á sextugsaldri fannst látinn í malarnámu í Þrengslunum í morgun. Jarðýta sem maðurinn stjórnaði virðist hafa farið fram af brún og fallið ofan í námuna úr mikilli hæð. Maðurinn var við næturvinnu þegar slysið varð. Lögreglan á Suðurlandi segir að tilkynning hafi borist rétt upp úr klukkan sjö í morgun til Neyðarlínu um slys í malarnámu suðaustanvert í Lambafelli við Þrengslaveg. „Þar reyndist jarðýta sem verið var að nota við að losa efni og ýta fram af fjallsbrúninni hafa farið fram af brúninni og ofan í námuna. Stjórnandi vélarinnar, íslenskur karlmaður á sextugs aldri, fannst skammt frá vélinni og reyndist látinn þegar að var komið.“ Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var maðurinn við vinnu á afar stórri jarðýtu, þeirri stærstu sem Liebherr framleiðir. Ýtan er af tegundinni Liebherr PR776 Litronic, vegur um 73 tonn og er í eigu GT verktaka sem eru með vinnslu í námunni. „Það er þannig þegar við vinnum vaktavinnu að þá er bara einn á tækinu á hverjum tíma sem vaktin er,“ segir Gísli Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri GT verktaka, í samtali við fréttastofu. Hann segist ekki vita til þess að sérstakar kröfur séu um að starfsmenn hafi samband við hvorn annan á vaktinni og láti vita af sér en þeir séu allir í símasambandi og reglulega sé haft samband við þá. „Það er þannig þegar menn eru á vöktum að þeir heyrast alltaf.“ Þá segir hann ekki vitað hvað hafi gerst. „Það er rétt byrjað að rannsaka þetta, hvað eiginlega gerðist og það veit það enginn. Við höfum ekki heyrt neitt,“ segir Gísli. Ef í ljós komi að breyta þurfi verkferlum til að tryggja betur öryggi vinnufólks verði farið í þá vinnu. Tildrög slyssins, sem talið er hafa átt sér stað einhvern tímann á tímabilinu eftir klukkan 23 í gærkvöldi og til morguns, eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi. „Gott væri að fá upplýsingar, frá vegfarendum um Þrengslaveg á þeim tíma geti þeir upplýst með einhverjum hætti um tímasetningar s.s. hvort þeir hafi séð til vinnu vélarinnar. Slíkum upplýsingum má koma til okkar í síma 444 2000, í tölvupósti á sudurland@logreglan.is eða á facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi.“ Tilkynninguna í heild má sjá að neðan. Kl. 07:02 í morgun barst Neyðarlínu tilkynning um slys í malarnámu suðaustanvert í Lambafelli við Þrengslaveg. Þar reyndist jarðýta sem verið var að nota við að losa efni og ýta fram af fjallsbrúninni hafa farið fram af brúninni og ofan í námuna. Stjórnandi vélarinnar, íslenskur karlmaður á sextugs aldri, fannst skammt frá vélinni og reyndist látinn þegar að var komið. Tildrög slyssins, sem talið er hafa átt sér stað einhverntíman á tímabilinu eftir kl. 23:00 í gærkvöldi og til morguns, eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi. Gott væri að fá upplýsingar, frá vegfarendum um Þrengslaveg á þeim tíma geti þeir upplýst með einhverjum hætti um tímasetningar s.s. hvort þeir hafi séð til vinnu vélarinnar. Slíkum upplýsingum má koma til okkar í síma 444 2000, í tölvupósti á sudurland@logreglan.is eða á facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina að sinni. Lögreglumál Ölfus Vinnuslys Mest lesið Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Umferðartafir vegna elds í tengivagni Innlent Fleiri fréttir Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney Sjá meira
Karlmaður á sextugsaldri fannst látinn í malarnámu í Þrengslunum í morgun. Jarðýta sem maðurinn stjórnaði virðist hafa farið fram af brún og fallið ofan í námuna úr mikilli hæð. Maðurinn var við næturvinnu þegar slysið varð. Lögreglan á Suðurlandi segir að tilkynning hafi borist rétt upp úr klukkan sjö í morgun til Neyðarlínu um slys í malarnámu suðaustanvert í Lambafelli við Þrengslaveg. „Þar reyndist jarðýta sem verið var að nota við að losa efni og ýta fram af fjallsbrúninni hafa farið fram af brúninni og ofan í námuna. Stjórnandi vélarinnar, íslenskur karlmaður á sextugs aldri, fannst skammt frá vélinni og reyndist látinn þegar að var komið.“ Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var maðurinn við vinnu á afar stórri jarðýtu, þeirri stærstu sem Liebherr framleiðir. Ýtan er af tegundinni Liebherr PR776 Litronic, vegur um 73 tonn og er í eigu GT verktaka sem eru með vinnslu í námunni. „Það er þannig þegar við vinnum vaktavinnu að þá er bara einn á tækinu á hverjum tíma sem vaktin er,“ segir Gísli Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri GT verktaka, í samtali við fréttastofu. Hann segist ekki vita til þess að sérstakar kröfur séu um að starfsmenn hafi samband við hvorn annan á vaktinni og láti vita af sér en þeir séu allir í símasambandi og reglulega sé haft samband við þá. „Það er þannig þegar menn eru á vöktum að þeir heyrast alltaf.“ Þá segir hann ekki vitað hvað hafi gerst. „Það er rétt byrjað að rannsaka þetta, hvað eiginlega gerðist og það veit það enginn. Við höfum ekki heyrt neitt,“ segir Gísli. Ef í ljós komi að breyta þurfi verkferlum til að tryggja betur öryggi vinnufólks verði farið í þá vinnu. Tildrög slyssins, sem talið er hafa átt sér stað einhvern tímann á tímabilinu eftir klukkan 23 í gærkvöldi og til morguns, eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi. „Gott væri að fá upplýsingar, frá vegfarendum um Þrengslaveg á þeim tíma geti þeir upplýst með einhverjum hætti um tímasetningar s.s. hvort þeir hafi séð til vinnu vélarinnar. Slíkum upplýsingum má koma til okkar í síma 444 2000, í tölvupósti á sudurland@logreglan.is eða á facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi.“ Tilkynninguna í heild má sjá að neðan. Kl. 07:02 í morgun barst Neyðarlínu tilkynning um slys í malarnámu suðaustanvert í Lambafelli við Þrengslaveg. Þar reyndist jarðýta sem verið var að nota við að losa efni og ýta fram af fjallsbrúninni hafa farið fram af brúninni og ofan í námuna. Stjórnandi vélarinnar, íslenskur karlmaður á sextugs aldri, fannst skammt frá vélinni og reyndist látinn þegar að var komið. Tildrög slyssins, sem talið er hafa átt sér stað einhverntíman á tímabilinu eftir kl. 23:00 í gærkvöldi og til morguns, eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi. Gott væri að fá upplýsingar, frá vegfarendum um Þrengslaveg á þeim tíma geti þeir upplýst með einhverjum hætti um tímasetningar s.s. hvort þeir hafi séð til vinnu vélarinnar. Slíkum upplýsingum má koma til okkar í síma 444 2000, í tölvupósti á sudurland@logreglan.is eða á facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina að sinni.
Kl. 07:02 í morgun barst Neyðarlínu tilkynning um slys í malarnámu suðaustanvert í Lambafelli við Þrengslaveg. Þar reyndist jarðýta sem verið var að nota við að losa efni og ýta fram af fjallsbrúninni hafa farið fram af brúninni og ofan í námuna. Stjórnandi vélarinnar, íslenskur karlmaður á sextugs aldri, fannst skammt frá vélinni og reyndist látinn þegar að var komið. Tildrög slyssins, sem talið er hafa átt sér stað einhverntíman á tímabilinu eftir kl. 23:00 í gærkvöldi og til morguns, eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi. Gott væri að fá upplýsingar, frá vegfarendum um Þrengslaveg á þeim tíma geti þeir upplýst með einhverjum hætti um tímasetningar s.s. hvort þeir hafi séð til vinnu vélarinnar. Slíkum upplýsingum má koma til okkar í síma 444 2000, í tölvupósti á sudurland@logreglan.is eða á facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina að sinni.
Lögreglumál Ölfus Vinnuslys Mest lesið Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Umferðartafir vegna elds í tengivagni Innlent Fleiri fréttir Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney Sjá meira