Bjarni um Guðlaug: „Orð sögð í hita leiksins“ Snorri Másson skrifar 8. júní 2021 13:44 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ekki áhyggjur af samstöðu innan Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefur skilning á að mönnum hlaupi kapp í kinn í prófkjörsbaráttu, eins og raunin varð með Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra á sigurfögnuði um helgina. „
Vettvangur stjórnmálanna er um margt ólíkur öðrum sviðum samfélagsins. Þar hleypur mönnum oft kapp í kinn og það er ýmislegt sagt. En niðurstaðan í þessu, sama hvað þú vilt fara í miklar bollaleggingar um framtíðina, er einfaldlega mjög ánægjuleg fyrir okkur Sjálfstæðismenn,“ segir Bjarni. Harkan í átökum Guðlaugs Þórs og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur varð ljós í sigurræðu Guðlaugs á kosningavöku um helgina, þar sem hann sagði að einhverjir ónefndir aðilar hafi lagt gríðarlega áherslu á að hann yrði ekki oddviti flokksins í kjördæminu. „Þið sáuð til þess að allir þeir sem unnu gegn því, að þeir töpuðu,“ sagði Guðlaugur við stuðningsmenn sína í ræðunni. Í viðtali við fréttastofu fer Bjarni yfir málið og segist þar ekki vita nákvæmlega til hvers Guðlaugur er að vísa. „Síðast þegar við héldum prófkjör í Reykjavík nutum við þess að hafa Ólöfu Nordal með okkur. Við höfum gengið til kosninga í millitíðinni og við höfum stillt upp listum þannig að við erum með tvö kjördæmi í Reykjavík og það hafa verið tveir oddvitar. En Guðlaugur var samt sem áður á eftir Ólöfu í síðasta prófkjöri. Kannski er verið að vísa til þess að hann hafi verið efstur í goggunarröðinni ef svo mætti að orði komast. En þetta eru orð sögð í hita leiksins og ég finn ekki annað en að í þingliðinu okkar ætli menn að snúa bökum saman og sækja fram sem ein öflug heild.“ Bjarni segist aðspurður ekki hafa viljað sérstaklega að Áslaug Arna tæki oddvitasætið í stað Guðlaugs, heldur eigi vilji flokksmanna í Reykjavík að ráða því. Hann tekur ekki afstöðu til þess. Rætt hefur verið um að niðurstaðan í prófkjörinu geti haft nokkuð um það að segja hver tekur við sem formaður flokksins á eftir Bjarna. Vill halda Sigríði og Brynjari í flokknum Bjarni vonast enn til að fá Sigríði Andersen og Brynjar Níelsson á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann vill fjölga þingmönnum Reykvíkinga. Brynjar og Sigríður sóttust bæði eftir öðru sæti í prófkjöri Reykvíkinga en báru hvort tveggja nokkuð skarðan hlut frá borði. Brynjar hafnaði í 5. sæti og segist hafa kvatt stjórnmálin en Sigríður var ekki einu sinni á meðal efstu átta í prófkjörinu. Hún segist ekki fara fram á sæti á listanum. „Þetta sýnir að pólitíkin er harður heimur, jafnvel þingmenn sem eru með langan þingferil og mikla reynslu, geta átt undir högg að sækja gagnvart nýjum frambjóðendum. Það er í sjálfu sér ekkert nýtt í því en persónulega er ég nú að vonast til þess að við njótum áfram krafta þeirra og förum inn í kosningarnar í haust með þann metnað að fjölga þingmönnum Reykvíkinga fyrir Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Bjarni.
Alþingiskosningar 2021 Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavíkurkjördæmi norður Tengdar fréttir Segir missi að Brynjari og vill að hann endurskoði ákvörðun sína Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í gær, vonast til að þingmaðurinn Brynjar Níelsson endurhugsi stöðu sína og taki þriðja sæti á öðrum lista flokksins í Reykjavík. Brynjar sóttist eftir öðru sæti í prófkjörinu en hafnaði í því fimmta. 6. júní 2021 23:27 Baráttan bara rétt að byrja Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem sigraði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík, er gríðaránægður með niðurstöðuna. Hann segir kosningu Diljár Mistar Einarsdóttur aðstoðarmanns síns eftirtektarverða - og þá sé spenna milli framboðs hans og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra að baki. 6. júní 2021 13:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Sjá meira
Segir missi að Brynjari og vill að hann endurskoði ákvörðun sína Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í gær, vonast til að þingmaðurinn Brynjar Níelsson endurhugsi stöðu sína og taki þriðja sæti á öðrum lista flokksins í Reykjavík. Brynjar sóttist eftir öðru sæti í prófkjörinu en hafnaði í því fimmta. 6. júní 2021 23:27
Baráttan bara rétt að byrja Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem sigraði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík, er gríðaránægður með niðurstöðuna. Hann segir kosningu Diljár Mistar Einarsdóttur aðstoðarmanns síns eftirtektarverða - og þá sé spenna milli framboðs hans og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra að baki. 6. júní 2021 13:30