Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   mán 05. desember 2022 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aníta Ýr framlengdi við Stjörnuna
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Á laugardag greindi Stjarnan frá því að félagið hefði náð samkomulagi við Anítu Ýr Þorvaldsdóttur um að samningur hennar yrði framlengdur út tímabilið 2024.

„Aníta Ýr er með leiknari leikmönnum Bestu deildarinnar en fáir leikmenn hafa þá boltatækni sem Aníta Ýr býr yfir. Hún kom skemmtilega inn í lið Stjörnunnar undir lok nýliðinnar leiktíðar, skoraði tvö mörk í Bestu deildinni, lagði upp önnur tvö mörk fyrir samherja sína og kom að tveimur mörkum okkar til viðbótar," segir í tilkynningu Stjörnunar.

Fyrri hluta sumars lék hún með Álftanesi og skoraði fjögur mörk í fjórum leikjum í 2. deild. Alls hefur Aníta leikið 33 leiki fyrir Stjörnuna í efstu deild og skorað í þeim níu mörk.

Hún er nítján ára gömul og á að baki þrettán leiki fyrir unglingalandsliðin. Stjarnan endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar í sumar og verður í forkeppni Meistaradeildarinnar á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner