Neil Young setur Spotify afarkosti vegna Joe Rogan Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. janúar 2022 11:48 Neil Young er allt annað en sáttur. Jo Hale/Redfern Rokkarinn Neil Young hefur krafist þess að tónlist hans á Spotify verði fjarlægð vegna falsupplýsinga um bóluefni sem Joe Rogan dreifi í hlaðvarpi sínu. Neil Young segir Spotify hafa valið; Neil Young eða Joe Rogan.
Í opnu bréfi sem Young skrifaði til umboðsmanns síns og útgáfufyrirtækis og birtist á vef Young skrifaði tónlistarmaðurinn: „Ég geri þetta vegna þess að Spotify er að dreifa fölskum upplýsingum um bóluefni sem getur leitt til dauða hjá þeim sem trúa þessum fölsku upplýsingum. Vinsamlegast bregðist við þessu í dag og haldið mér upplýstum um tímaáætlunina,“ sagði í bréfi Young. Bréfið hefur verið fjarlægt af heimasíðu Young. Young áréttaði að ákvörðun hans kæmi til vegna hlaðvarpsins The Joe Togan Experience sem er um þessar mundir vinsælasta hlaðvarpið á Spotify og eitt það vinsælasta í heimi. Rogan skrifaði undir samning við Spotify að andvirði um 130 milljarða íslenskra króna árið 2020 sem gaf Spotify einkarétt að þættinum. Joe Rogan hefur komið fram sem starfsmaður á UFC viðburðum.Getty Images/Carmen Mandato Young sagðist í bréfinu finna að því að Spotify dreifði svo áhrifaríkum hlaðvarpsþætti og fyndi ekki til ábyrgðar þegar kæmi að dreifingu falsfrétta. Bréfið var stílað á umboðsmanninn Frank Gironda og Tom Corson, framkvæmdastjóra hjá Warner Records, útgáfufyrirtæki Young. Gironda staðfesti við The Daily Beast að bréfið hefði verið skrifað af Young sem hefði sterkar skoðanir á málinu. Verið væri að vinna í því. Young væri í miklu uppnámi. 270 læknar, vísindamenn og heilbrigðisstarfsmenn skrifuðu í desember bréf til Spotify og óskuðu eftir því að streymisveitan brygðist við fölskum upplýsingum sem Rogan miðlaði í þætti sínum. Var vísað til viðtals Rogan við Robert Malone veirufræðing sem kom að mRNA tækninni sem leiddi til Covid-19 bóluefnanna. Hópurinn gagnrýndi ýmsar samsæriskenningar sem Malone og Rogan héldu fram. Þeirra á meðal að sjúkrahús væru vísvitandi að flokka dauðsföll á spítölum af völdum Covid-19 og fullyrðingu Malone þess efnis að leiðtogar heimsins hefðu dáleitt almenning til að styðja bóluefni. Fullrúar Spotify höfðu ekki brugðist við málinu þegar fréttin var skrifuð. Guardian greinir frá.
Tónlist Bólusetningar Spotify Mest lesið Æðisleg tilfinning að þurfa ekki að geðjast fólki Tónlist „Tíu ár en enginn hringur“ Makamál Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Lífið „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Víkingur Heiðar á smáskrifborðstónleikum Tónlist Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Fleiri fréttir Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Bein útsending: Heimir Guðjóns og Höddi Magg í einvígi aldarinnar Kappakstur milli Hjálmars og Magneu Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO Knattspyrnufólk og bransastjörnur fjölmenntu í bíó Líkt við apa og klappað eins og hundi Barnalán hjá Batman Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? „Ég get ekki gert upp á milli barna“ Þingforseti, borgarfulltrúi og Frikki Dór í fjölmennu útgáfuhófi Handboltagoðsögn selur glæsihús í Garðabæ Bein útsending: Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins Ætlaði sér alltaf að verða leikari Júlí Heiðar og Þórdís eiga von á stelpu: „Djöfull var ég tekin“ Sacha Baron Cohen æfareiður út í Rebel Wilson Chess After Dark strákarnir boða til einvígis aldarinnar Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Fjandinn laus þegar málshættina vantar Palli snöggreiddist þegar hann var sakaður um að hafa verið tjokkó Undurfagrar páskaskreytingar Keypti íbúðina af huggulegustu hommum landsins Myndaveisla: Bjarni Ben skálaði fyrir einstökum Audi Eyþór stillti Eivøru upp við vegg og lét hana flytja lagið Running Up That Hill „Harry Klein“ er látinn Stjörnulífið: Hlustendaverðlaunin, ferðalög og afmælisgleði Sjá meira