Hæstánægður með skimunarskylduna og vonar að ræðan hafi hjálpað Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. janúar 2021 17:20 Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli. Aðsend Sigurgeir Sigmundsson yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir að ákvörðun heilbrigðisráðherra um að skylda alla í tvöfalda skimun á landamærum sé mikið ánægjuefni. Hann þakkar ríkisstjórninni fyrir skjót viðbrögð. Enn eigi þó eftir að útfæra framkvæmd reglugerðarinnar á flugvellinum. „
Það er mjög ánægjulegt að nú sé búið að afnema möguleikann á því að fólk geti komið inn í landið án þess að fara í nokkra skimun. Þá er búið að þétta í þessar sprungur sem voru hérna í varnargarðinum á landamærunum okkar,“ segir Sigurgeir í samtali við Vísi. „Og mig langar að þakka ríkisstjórninni fyrir skjót viðbrögð í morgun, með þessari ákvörðun sinni að allir fari í tvöfalda skimun á landamærunum.“ Sigurgeir segir ákvörðun heilbrigðisráðherra svara vel ákalli hans á upplýsingafundi almannavarna í gær, sem vakti talsverða athygli. Sigurgeir kveðst hafa fengið góð viðbrögð við ræðunni. „Og bara gott ef hún hefur hjálpað Þórólfi sóttvarnalækni við hans mikilvæga starf. En jú, ég var að kalla eftir skjótari lagabreytingum og því að hægt væri að framfylgja tillögum sóttvarnalæknis og ég vil nú bara eigna honum heiðurinn af því að vera óþreytandi að leggja sífellt fram tillögur að aðgerðum sem eiga að tryggja heilsu og öryggi landsmanna.“ Þá bendir Sigurgeir á að skimunarskyldan hafi lágmarksáhrif á farþegaflæði, þar sem svo lítill hluti farþega hafi valið tveggja vikna sóttkví. Auk þess hafi lögregla á flugvellinum náð að telja á þriðja hundrað manns á að fara frekar í skimun frá því í október. „Ef það hefði verið farið út í þessa þrautavaratillögu sóttvarnalæknir um neikvæð erlend vottorð þá hefði flug væntanlega nánast lagst af eins og forstjóri Airports Associates talaði um í gær.“ Á eftir að útfæra framkvæmdina gagnvart Íslendingum Reglugerð heilbrigðisráðherra um skimunarskylduna hefur ekki verið birt. Inntur eftir því hvort fyrirkomulagið verði þannig að þeir sem harðneiti að fara í skimun verði vísað úr landi segir Sigurgeir að enn eigi eftir að útfæra það. „En væntanlega verður það þannig að verður farið í frávísunarmál á grundvelli útlendingalaga og svo á eftir að útfæra það gagnvart Íslendingum og þeim sem mega dvelja hér, hvort þeir verði settir í farsóttarhús. Það verður að vinna það með sóttvarnalækni hratt og vel.“ Verkafólk frá útlöndum virði almennt reglur Sigurgeir sagði í samtali við Vísi í gær að fólk úr ýmsum áttum hefði valið tveggja vikna sóttkví fram yfir tvöfalda skimun. Sumir hafi borið fyrir sig stjórnarskrárvarinn réttindi, aðrir hafi ekki viljað láta taka úr sér lífsýni og þá sé ljóst að einhverjir hafi haft í hyggju að fara beint að vinna eða ferðast. Þá biðlaði hann sérstaklega til atvinnulífsins á upplýsingafundinum í gær að sinna samfélagslegri ábyrgð og sjá til þess að starfsfólk sinni sýnatökum og sóttkví áður en mætt er til vinnu. Sigurgeir segir að almennt virðist starfsfólk sem kemur erlendis frá virða reglurnar. „Heilt yfir vitum við ekki annað en að atvinnulífið sé að standa sig vel í að starfsfólk sem kemur frá útlöndum sé að klára sína sóttkví og sýnatökur. Og almannavarnir og sóttvarnir funda vikulega með öllu atvinnulífinu. Samráð sóttvarnalæknis og almannavarna við atvinnulífið er mjög gott. En það eru alltaf einhverjir svartir sauðir í fyrirtækjarekstri eins og alls staðar. Þar liggur hættan. En það er ekki tilfinning mín að þetta sé útbreitt vandamál.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Keflavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Allir verða skyldaðir í tvöfalda skimun frá og með deginum í dag Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lagði til á ríkisstjórnarfundi í morgun að tvöföld skimun á landamærum verði skylda frá og með deginum í dag. Val um tveggja vikna sóttkví við komu til landsins verður því afnumið. 15. janúar 2021 12:09 Fimm greindust innanlands Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki. Sjö greindust á landamærum. 15. janúar 2021 10:56 Furðar sig á ákvörðun heilbrigðisráðherra og spyr hvað hafi eiginlega breyst Helga Vala Helgadóttir formaður velferðarnefndar Alþingis telur stjórnvöld ekki hafa heimild í lögum til að skylda alla farþega sem koma til landsins í tvöfalda skimun, líkt og heilbrigðisráðherra tilkynnti í hádeginu. Helga Vala furðar sig á því að ráðherra telji sig hafa heimild til þess núna og spyr hvað hafi breyst frá því að málið kom til álita í síðustu viku. 15. janúar 2021 15:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Fleiri fréttir „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Sjá meira
Allir verða skyldaðir í tvöfalda skimun frá og með deginum í dag Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lagði til á ríkisstjórnarfundi í morgun að tvöföld skimun á landamærum verði skylda frá og með deginum í dag. Val um tveggja vikna sóttkví við komu til landsins verður því afnumið. 15. janúar 2021 12:09
Fimm greindust innanlands Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki. Sjö greindust á landamærum. 15. janúar 2021 10:56
Furðar sig á ákvörðun heilbrigðisráðherra og spyr hvað hafi eiginlega breyst Helga Vala Helgadóttir formaður velferðarnefndar Alþingis telur stjórnvöld ekki hafa heimild í lögum til að skylda alla farþega sem koma til landsins í tvöfalda skimun, líkt og heilbrigðisráðherra tilkynnti í hádeginu. Helga Vala furðar sig á því að ráðherra telji sig hafa heimild til þess núna og spyr hvað hafi breyst frá því að málið kom til álita í síðustu viku. 15. janúar 2021 15:00