Embætti landlæknis hefur heyrt af kvörtunum um að upplýsingar um skimun komi ekki nógu áberandi fram í skilaboðum til fólks og á vefsíðunni heilsuveru.is
„Við höfum heyrt af þessu og það er verið að leysa þetta,“ segir Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, í svari við fyrirspurn mbl.is.
Þeir sem hafa fengið boð um að fara í skimun hafa fengið smáskilaboð um að þeir hafi verið boðaðir ásamt strikamerki sem nota skal við skimunina. Ekkert kemur fram um hvert þeir eiga að fara í skimun og hvenær. Vísað er í frekari upplýsingar á heilsuveru.is. Þar kemur ekki fram hvar fólk á að mæta í skimun og klukkan hvað fyrr en mjög neðarlega í póstinum, sem skýtur nokkuð skökku við.
Ekkert kemur heldur fram um hvar einstaklingurinn gæti hafa smitast. Aðspurður segir Kjartan Hreinn að fólk ætti að fá nokkuð góða hugmynd um hvar það hafi mögulega smitast í gegnum samskipti við smitrakningarteymið. Hann tekur þó fram: „Við erum svakalega góð í að rekja smitin og átta okkur á því gróflega hvar fólk var þegar það smitaðist en í svona fræðum eins og með kórónuveiruna er aldrei hægt að segja 100% hvar einhver smitaðist,“ segir hann.