Katti Frederiksen hlýtur Vigdísarverðlaunin 2021 Eiður Þór Árnason skrifar 15. apríl 2021 23:03 Katti Frederiksen tók við sem mennta- og menningarmálaráðherra Grænlands í fyrra. Stjórnarráðið Grænlenska málvísindakonan, ljóðskáldið og baráttukonan Katti Frederiksen, núverandi mennta- og menningarmálaráðherra Grænlands, hlaut í dag alþjóðleg menningarverðlaun sem kennd eru við Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands.
Vigdísarverðlaunin eru árlega veitt einstaklingi sem er talinn hafa brotið blað með störfum sínum í þágu menningar og þá einkum tungumála. Katti hlýtur verðlaunin í ár fyrir lofsvert framlag sitt í þágu tungumála en þau nema sex milljónum íslenskra króna. Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðsins en Þorbjörn Jónsson, ræðismaður Íslands á Grænlandi, afhenti verðlaunin. „Katti Frederiksen hefur með eftirtektarverðum hætti vakið athygli á málefnum grænlenskunnar jafnt innan lands sem utan. Með ljóðum sínum, fræðaskrifum, barnabókum og þátttöku í opinberri umræðu hefur hún verið óþreytandi við að minna á mikilvægi grænlenskunnar fyrir grænlenskt samfélag og hve brýnt sé að stuðla að vexti og viðgangi tungunnar svo hún megi nýtast á öllum sviðum mannlífs og þjóðlífs,“ segir á vef Stjórnarráðsins. Gert mikið fyrir grænlenska tungu Katti Frederiksen lauk meistaraprófi í grænlensku, bókmenntafræði og fjölmiðlafræði frá Háskólanum í Nuuk, Ilisimatusarfik, árið 2011, en hluta námsins tók hún við University of Alaska í Fairbanks. Þá hefur hún átt sæti í Málnefnd Grænlands og starfað til fjölda ára hjá Oqaasileriffik, Málráðs Grænlands, fyrst sem deildarstjóri en síðar sem framkvæmdastjóri. Árið 2020 varð hún svo mennta- og menningamálaráðherra Grænlands. „Með störfum sínum hjá Oqaasileriffik hefur Katti Frederiksen ásamt samstarfsfólki sínu fyrr og síðar lagt drjúgan skerf til verkefna sem er ætlað að efla og þróa grænlenska tungu og gera hana í stakk búna til að takast á við áskoranir á tímum þar sem allt veltur á þátttöku í og aðild að stafrænum lausnum.“ Heldur ótrauð áfram Að sögn mennta- og menningarráðuneytisins hefur Katti undirstrikað nauðsyn þess að börn og unglingar temji sér að tala og skrifa grænlensku til að styrkja sjálfsmynd Grænlendinga, vitund þeirra um eigin menningu og trú á framtíðina. „Ég er með ýmislegt á prjónunum sem snertir tungumál og bókmenntir og þess vegna skipta Vigdísarverðlaunin gríðarlega miklu máli fyrir þau verkefni sem eru fram undan. Þau hvetja mig til dáða og gefa mér þrótt til að halda ótrauð áfram í átt að því marki sem ég hef sett mér,“ sagði Katti Frederiksen í þakkarávarpi sínu þegar hún tók við verðlaununum. Íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum settu Vigdísarverðlaunin á fót í tilefni á af 90 ára afmæli Vigdísar í fyrra og þess að þá voru liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar. Að sögn ráðuneytisins er markmiðið með verðlaununum að heiðra og vekja athygli á lofsverðu framlagi Vigdísar til tungumála og menningar sem ætíð hafa verið henni afar hugleikin.
Grænland Vigdís Finnbogadóttir Menning Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Drengurinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Sjá meira