Allt að 50 manns mega koma saman – 200 áhorfendur á kappleikjum

Allt að 200 manns mega sækja viðburði eins og íþróttakappleiki og leikhússýningar frá og með morgundeginum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Almennar fjöldatakmarkanir samkomubanns fara úr 20 manns upp í 50 manns á morgun.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Auglýsing

„Þetta eru umtals­verðar til­slak­anir nún­a,“ sagði Svan­dís Svav­ars­dóttir er hún steig út af rík­is­stjórn­ar­fundi í dag og kynnti fyrir fjöl­miðlum aðal­at­riðin í til­slök­unum á sótt­varna­ráð­stöf­unum sem taka gildi á morg­un. 

Reglu­gerðin hefur verið birt og hana má lesa í heild hér.



50 manns mega frá og með morg­un­deg­inum koma saman í stað 20 áður og allt að 200 manns mega sækja sviðs­lista­við­burði, íþrótta­við­burði og aðra sam­bæri­lega við­burði ef hægt er að tryggja að fólk sitji í sætum með einn metra á milli ótengdra aðila. 



Upp­lýs­ingar eiga líka að liggja fyrir um hvern og einn áhorf­anda, til að auð­velda megi smitrakn­ingu ef á þarf að halda. 



„Þetta er breyt­ing fyrir íþrótta­að­dá­end­ur,“ sagði Svandís, en áhorf­endur hafa ekki mátt vera á íþrótta­kapp­leikjum und­an­farna mán­uði. Þessar nýju reglur gilda næstu þrjár vik­ur.



Svan­dís sagði einnig að opn­un­ar­tími veit­inga­staða og kráa yrði lengdur um eina klukku­stund frá því sem nú er. Ekki verða gerðar breyt­ingar varð­andi grímu­skyldu og hin almenna tveggja metra regla er ennþá í gildi.

Auglýsing

Hér eru helstu atriði sem breyt­ast frá og með morg­un­deg­in­um, 24. febr­ú­ar:

Söfn og versl­an­ir: Við­skipta­vinir mega vera allt að 200 í stað 150 áður, að upp­fylltum skil­yrðum reglu­gerð­ar­innar um fer­metra­fjölda. Áfram gilda 2 metra nálægð­ar­mörk og grímu­skylda.

Við­burðir þar sem gestir sitja: Allt að 200 manns mega vera við­staddir athafnir trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga, sviðs­list­ar- menn­ing­ar- og íþrótta­við­burði, ráð­stefn­ur, fyr­ir­lestra og sam­bæri­lega við­burði að upp­fylltum öllum eft­ir­töldum skil­yrð­um.

  • Heim­iluð nánd­ar­mörk milli ótengdra aðila eru nú 1 metri, að upp­fylltum skil­yrð­um.
  • Gestir mega ekki sitja and­spænis hver öðrum nema meira en tveir metrar séu á milli þeirra.
  • Þátt­taka allra gesta skal skráð þar sem fram kemur nafn, kennitala og síma­núm­er.
  • Allir skulu nota and­lits­grímu og tryggt að fjar­lægð milli ótengdra aðila sé meiri en 1 metri.
  • Heim­ilt er að hafa hlé á sýn­ingum en áfeng­is­veit­ingar og áfeng­is­sala á við­burðum er óheim­il.
  • Koma skal í veg fyrir hópa­mynd­an­ir, jafnt fyrir og eftir við­burð og í hléi.
  •  Ef ekki er hægt að upp­fylla eitt­hvert fram­an­tal­inna skil­yrða gildir reglan um 50 manna hámarks­fjölda á við­burð­in­um.

Áhorf­endur á íþrótta­við­burð­um: Heim­ilt er að hafa áhorf­endur á íþrótta­við­burð­um. Áhorf­endur mega vera allt að 200 manns að því gefnu að hægt sé að upp­fylla öll skil­yrði hér að framan um við­burði þar sem gestir sitja. Ef áhorf­endur eru stand­andi gildir regla um 50 manna hámarks­fjölda. 

Sund- og bað­stað­ir: Gestir mega vera 75 pró­sent af leyfi­legum hámarks­fjölda.

Heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðv­ar: Gestir mega vera 75 pró­sent af leyfi­legum hámarks­fjölda. Í  hverju rými mega nú að hámarki vera 50 manns. 

Skíða­svæði: Heim­ilt er að taka á móti 75% af hámarks­fjölda af mót­töku­getu hvers svæð­is.

Veit­inga­staðir þar sem heim­il­aðar eru áfeng­is­veit­ing­ar: Leyfi­legur hámarks­fjöldi í rými verður 50 manns. Heim­ilt er að taka á móti nýjum við­skipta­vinum til kl. 22.00 en þeir skulu allir hafa yfir­gefið stað­inn fyrir kl. 23.00.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent