Segir Armie Hammer hafa „merkt sig“ og dreift nektarmyndum í óleyfi Sylvía Hall skrifar 21. febrúar 2021 20:03 Armie Hammer. Getty/Patrick McMullan Áhrifavaldurinn og háskólaneminn Paige Lorenze segir leikarann Armie Hammer hafa rist upphafsstaf sinn við lífbein hennar og síðar sleikt blóðið í burtu. Lorenze, sem var kærasta Hammer undir lok síðasta árs, hefur áður greint frá því að hann hafi dreift nektarmyndum af henni án hennar leyfis.
Styr hefur staðið um leikarann í ár eftir að skjáskot af skilaboðum frá honum fóru í dreifingu á netinu. Skilaboðin áttu að hafa verið send á konur sem hann var ýmist að hitta eða í samskiptum við, og sagðist hann þar vilja „drekka úr þeim blóðið“ og kvaðst vera mannæta. Þá sagðist hann eiga konurnar. ⚠️⚠️⚠️⚠️⚠️ pic.twitter.com/IjsCA2T06H— TIMES UP🖤 (@timesupmetooAH) January 29, 2021 Í kjölfarið steig kona fram sem átti í ástarsambandi við leikarann á meðan hann var giftur fyrrverandi eiginkonu sinni Elizabeth Chambers. Sagði hún leikarann hafa haldið við margar konur á sama tíma, sagt þeim að hann væri ástfanginn af þeim og beðið þær um að bíða þar til skilnaður hans og Chambers færi í gegn. Með tímanum hefði hegðun hans orðið ofbeldsfyllri og hann farið að tala um hluti á borð við mannát, blóðdrykkju og fleira í þeim dúr. Hann hafi litið svo á að konurnar væru eign hans. Hefði átt að vita að henni þætti þetta óþægilegt Lorenze, sem er 23 ára gömul, sagði í viðtali við Dr. Oz að Hammer hefði rist upphafsstafinn á líkama hennar á meðan hún var bundin. Hann hafi spurt hana um leyfi, en hófst handa við að rista stafinn áður en hún fékk færi á að svara. View this post on Instagram A post shared by P (@paigelorenze) Benti hún á aldursmuninn þeirra á milli, sem er tólf ár, og sagði hann hafa verið í augljósri valdastöðu gagnvart henni. Hún hafi viljað gera honum til geðs á þessum tíma og hann hefði mátt vita að henni þætti þetta óþægilegt. Lorenze greindi sjálf frá því á Twitter í janúar að Hammer væri að deila nektarmyndum af henni án hennar vitundar. Hún hefði aldrei gefið honum leyfi til, enda vissi hún ekki af myndunum, og frétti af dreifingunni í gegnum þriðja aðila. AH sharing photos of me I didn’t even know existed with people online, without my permission or knowledge. Disgusting, violating and quite frankly unacceptable. pic.twitter.com/CTaIrvHfJr— Paige Lorenze (@paigelorenze) January 24, 2021 „AH að deila myndum af mér sem ég vissi ekki að væru til með fólki á netinu, án míns leyfis eða vitundar. Ógeðslegt, meiðandi og í raun óásættanlegt,“ skrifaði Lorenze. Þá hefur hún áður sagt leikarann hafa geymt gínur í kjallaranum sínum þar sem hann æfði sig í því að binda hnúta og hann hafi verið með þráhyggju fyrir „kjöti, beinum og æðum“. Hammer hefur ekki enn tjáð sig um ásakanir Lorenze, en hvað varðar upphaflegu skjáskotin sagðist hann ekki ætla að tjá sig um „fáránlegar fullyrðingar“ og árásir gagnvart persónu sinni. Sagðist hann sjálfur hafa sagt sig frá verkefnum vegna málsins.
Hollywood MeToo Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Fleiri fréttir Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Sjá meira