Bóndinn undirbýr hrognavinnsluna

Loðna og landbúnaður. Arnar Eysteinsson við heyskap heima í Stórholti.
Loðna og landbúnaður. Arnar Eysteinsson við heyskap heima í Stórholti.

Nú styttist í að vinnsla loðnuhrogna hefjist í fiskiðjuverum víða um land og þá kemur til kasta Arnars Eysteinssonar, bónda í Stórholti 2 í Saurbæ í Dalabyggð.

Sauðfjárbóndinn smalar sínu fólki saman og heldur til starfa hjá Brimi hf. á Akranesi, þar sem hrognin verða unnin á næstunni. Arnar áætlar að um 30 manns taki þátt í törninni, en hann heldur utan um hópinn.

Í ár eru 20 ár liðin frá því að hann fór fyrst á hrognavertíð og segir það alltaf skemmtilegt. „Þessu fylgir stemning og törnin skilar einhverjum krónum. Ég viðurkenni þó að maður er aðeins farinn að eldast þannig að þetta er ekki alveg eins spennandi og fyrstu árin,“ segir Arnar í Morgunblaðinu í dag.

Í Stórholti 2 eru Arnar og Ingveldur Guðmundsdóttir, kona hans, með um 600 fjár. Í fjarveru Arnars sér Ingveldur um gegningar og önnur bústörf. Hún er fyrir löngu orðin öllu vön í þeim efnum, en starfar einnig á heilsugæslunni í Búðardal. Arnar segir að heldur hafi hægst um hjá henni þar sem hún starfi ekki lengur í sveitarstjórn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert