Katrín og Guðni senda samúðarkveðjur

Grímseyjarkirkja brann til grunna síðustu nótt.
Grímseyjarkirkja brann til grunna síðustu nótt. Ljósmynd/Aðsend

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sagði frá því á facebook-síðu sinni í dag að hann hefði sent Grímseyingum samúðarkveðju en Miðgarðakirkja í Grímsey brann til grunna síðustu nótt. 

„Skaðinn er mikill, en þakkarvert að manntjón hafi ekki orðið. Í kveðju til Karenar Nóttar Halldórsdóttur, formanns hverfisráðs Grímseyjar, nefndi ég að fallegir munir hafi glatast að eilífu en byggingar sé hægt að endurreisa ef vilji er fyrir hendi,“ skrifar Guðni og bætir við að um þessar mundir væru níu aldir frá því að kirkja var fyrst vígð í Grímsey. 

„Þrautseigju hefur ætíð verið þörf á þessari nyrstu byggð landsins, brothættri byggð eins staðan er um þessar mundir. Ég ítreka góðar óskir til Grímseyinga og vonast til að geta sótt þá heim við hentugleika,“ skrifar hann.

Margar merkar menningarminjar eyðilagst

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tjáði sig einnig í facebook-færslu og sagði huga sinn vera hjá íbúum Grímseyjar og öllum þeim sem unnu að þessari merku kirkju. 

„Mikið óskaplega er sárt að heyra af bruna Miðgarðakirkju í Grímsey í nótt. Þetta er mikið áfall fyrir samfélagið allt í Grímsey og ljóst að þarna hafa margar merkar menningaminjar eyðilagst sem er óbætanlegt tjón,“ skrifar Katrín. 

Þá skrifar Katrín að stjórnvöld muni ræða við heimamenn og segist hún viss um að það verði ríkur vilji allra til að styðja við bakið á Grímseyingum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert