Evu Cassidy dreymir um að feta í fótspor frænku sinnar Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 23. nóvember 2021 15:08 Eva Cassidy er fimmtán ára gömul og á ekki langt að sækja sönghæfileikana. Facebook Eva Cassidy syngur í kirkjukór og dreymir hana um að taka þátt í Vælinu, söngvakeppni Verzlunarskólans. Það er þó ekki sú Eva Cassidy sem okkur flestum er kunnug, heldur fimmtán ára gömul frænka hennar og nafna sem á ekki langt að sækja sönghæfileikana.
Eva heitir fullu nafni Eva Katrín Daníelsdóttir Cassidy og er hún bróðurdóttir söngkonunnar Evu Cassidy sem lést árið 1996 eftir baráttu við krabbamein. Eva er fædd árið 2006 og hitti frænku sína því aldrei. Hún hlustar þó á tónlistina hennar og hefur horft á heimildarmynd um líf hennar. „Mér finnst hún algjörlega frábær söngkona. Ég vildi að ég hefði hitt hana,“ segir Eva sem hefur lagt sönginn fyrir sig eins og frænka sín. Eva var þekktust fyrir lög á borð við Songbird, Fields of Gold og Autumn Leaves. Hér að neðan má hlusta á flutning hennar á laginu Somewhere Over the Rainbow. Var of feimin til þess að syngja „Ég er búin að vera að syngja síðan ég var lítil. Ég var alltaf að syngja með Frozen og alls konar. Síðan byrjaði ég í píanónámi í Tónsmiðju Suðurlands. Fyrst þorði ég alls ekki að syngja en síðan byrjaði ég bara og hef elskað það síðan.“ Faðir Evu er fiðluleikarinn Dan Cassidy. Hann hafði lengi reynt að ná dóttur sinni inn í hljóðver að taka upp tónlist. „Ég var bara fyrst ótrúlega feimin við hann því hann er náttúrlega tónlistarmaður líka, þannig ég var hrædd um það hvað honum myndi finnast.“ Eva virðist hins vegar hafa sigrast á feimninni því fyrr á árinu tók hún upp lagið New York State of Mind og þar má heyra að hún gefur frænku sinni lítið eftir. Það er Birkir Hrafn sem spilar undir. Dreymir um að taka þátt í Vælinu Sjálf spilar Eva á píanó og er að taka sín fyrstu skref í lagasmíðum. „Mér finnst mjög auðvelt að semja texta og ég er búin að vera skrifa mikið af af textum undanfarið. En það er laglínan eða hljómagangurinn sem ég á erfitt með, því ég er ekki með grunninn í hljómfræði. En ég ætla að fara læra hann bráðum og mig langar mjög mikið til að fara byrja semja.“ Eva segir það ekki hafa haft mikil áhrif á sig að bera sama nafn og frænka sín, þar sem fæstir jafnaldrar hennar kannist við hana. Hún hafi hins vegar lent í því oftar en einu sinni að eldra fólki finnist skyldleikinn merkilegur. Eva er á lokaári í grunnskóla og er stefnan tekin á Verzlunarskóla Íslands en þar er músíkin helsta aðdráttaraflið. „Þar er stór söngvakeppni sem heitir Vælið og mig langar rosalega mikið til að taka þátt í henni og fara að semja lög og vonandi gefa þau út.“ Eva Cassidy var gestur í Bítinu á Bylgjunni en hér að neðan má hlusta á viðtalið í heild sinni.
Bítið Tónlist Mest lesið „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Tónlist Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Lífið Bakaríið í beinni Lífið Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Lífið Fleiri fréttir „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Sjá meira