Dagný á skotskónum með West Ham

Dagný Brynjarsdóttir fagnar marki með West Ham.
Dagný Brynjarsdóttir fagnar marki með West Ham. Ljósmynd/@westhamwomen

West Ham vann öruggan 3:0-heimasigur á Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn með West Ham og gerði annað mark liðsins á 57. mínútu. Dagný hefur gert þrjú mörk í tíu deildarleikjum á leiktíðinni.

West Ham er í 7. sæti deildarinnar af 12 liðum með 17 stig eftir 11 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert