Stefna á að safna milljón fyrir Barnaspítalann með bóksölu um jólin Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 5. desember 2021 20:01 Margrét Hörn Jóhannsdóttir og Dagur Lárusson. stöð2 Næst segjum við ykkur frá ofurhetjum sem stefna á að safna einni milljón fyrir Barnaspítala hringsins með bóksölu um jólin.
Góðhjörtuðu ofurhetjurnar Atlas og Íra afhendu Barnaspítala hringsins í dag bækur og boli í tilefni af útgáfu bókarinnar Landverðirnir: Íra. Um er að ræða myndasögubók um íslenskar ofurhetjur sem láta gott af sér leiða en fyrsta bók ofurhetjanna kom út í fyrra. „Við gáfum út þessa bók í fyrra og seldum um 400 til 500 eintök og ákváðum að gefa hagnað rithöfundanna til Barnaspítala hringsins. Þannig við komum hingað í febrúar og gáfum hálfa milljón til spítalans,“ sagði Dagur Lárusson, rithöfundur bókarinnar. „Ég leik karakterinn Íru og býr yfir kröftum íslenska íssins,“ sagði Margrét Hörn Jóhannsdóttir, leikkona. Til stóð að ofurhetjurnar yrðu reglulegir gestir á spítalanum en vegna kórónuveirunnar láta þeir nægja að heilsa börnunum í gegnum glugga spítalans. „Hverjar eru alvöru ofurhetjurnar? Það eru krakkarnir hérna sem eru að kljást við óeðlilega erfiða hluti,“ sagði Dagur. Hafið þið heyrt í börnunum, hvernig líst þeim á bókina? „Við höfum heyrt frá einstaka börnum já og erum virkir á Tiktok. Þar er ég mikið að tala um bókina og ofurhetjulega hluti. Þar er fólk að missa sig og komið með landvarðaræði þannig að það er gaman að sjá það.“ Ofurhetjurnar stefna á að selja fleiri eintök í ár. „Markmiðið er að styrkja enn meira. Við viljum selja fleiri eintök af þessari bók þannig að við getum gefið eina milljón til Barnaspítalans. Það er markmiðið núna.“ „Ef þið viljið styrkja gott málefni og styrkja þessar ofurhetjur þá endilega kíkið á landverðirnir.is.“ sagði Dagur. Bókin fæst í helstu verslunum.
Landspítalinn Börn og uppeldi Bókmenntir Bókaútgáfa Góðverk Mest lesið Eurovision-vaktin: Stemningin sjaldan verið minni Lífið Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Lífið Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Tíska og hönnun Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Lífið Laufey skein skært á Met Gala Tíska og hönnun Hera komst ekki áfram Lífið Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Lífið Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Lífið Fleiri fréttir Hera komst ekki áfram „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Eurovision-vaktin: Stemningin sjaldan verið minni Eurovision-hópurinn afklæðist milli atriða Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Glösin á loft fyrir nýjum burstahreinsi „Pollróleg“ en full eftirvæntingar fyrir kvöldinu Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Sumarlegir réttir að hætti Jönu Emilíana Torrini kemur fram í Hörpu Búa til barnaefni á íslensku á Youtube Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Blóm og plöntur sem þola kuldann Neyslan var orðinn algjör þrældómur Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Bítið í beinni Sjá meira