Mourinho eftir stórtapið í Noregi: Betra liðið með betri leikmenn vann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. október 2021 13:31 José Mourinho horfir á leikmenn Bodø/Glimt fagna. getty/Fabio Rossi José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, sendi leikmönnum sínum tóninn eftir stórtapið fyrir Bodø/Glimt, 6-1, í Sambandsdeild Evrópu í gær. Hann sagði að lið Bodø/Glimt í leiknum í gær hefði einfaldlega verið betra en það sem hann tefldi fram.
Mourinho stillti ekki upp sínu sterkasta liði í gær og kvartaði yfir því að varamennirnir í leikmannahópi Roma væru ekki nógu góðir. „Þetta voru mín mistök. Ég vildi hvíla leikmenn eftir leikinn gegn Juventus og fyrir leikinn gegn Napoli. Ég tók þessa ákvörðun og á endanum eru leikmennirnir þeirra betri en mínir leikmenn. Þeir eru með betra lið en við,“ sagði Mourinho. „Leikurinn þróaðist í þá átt að við misstum alla stjórn á tilfinningum og öllu. Sannleikurinn er sá að betra liðið með betri leikmenn vann. Þeir eru betri en við.“ Mourinho var ekki á því að hrósa liði Bodø/Glimt of mikið eftir leikinn. „Mér fannst ekki mikið til þeirra koma. Ég veit að þeir eru með gott lið. Við greindum þá með allri þeirri virðingu sem þeir áttu skilið. Ég vissi að þeir væru með gott lið,“ sagði Mourinho áður en hann skammaðist meira yfir varamönnunum í leikmannahópi Roma. „Að sjálfsögðu vildi ég sjá meira frá rulluspilurunum okkar. Það skiptir máli að tapa svona stórt. Ef ég hafði einhverjar efasemdir, og þær voru ekki miklar, þá erum við með gott lið en ekki góðan hóp. Í dag spiluðum við ekki með liðið heldur hópinn og okkur var refsað.“ Þetta er í fyrsta sinn sem lið undir stjórn Mourinhos fær á sig sex mörk í leik. Þetta er jafnframt í aðeins annað sinn sem lið Mourinhos tapar með fimm marka mun. Það gerðist einnig 2010 þegar Real Madrid tapaði 5-0 fyrir Barcelona. Tottenham er í 2. sæti C-riðils Sambandsdeildarinnar með sex stig, einu stigi á eftir Bodø/Glimt. Liðin mætast aftur í Róm 4. nóvember.Alfons Sampsted lék allan leikinn fyrir Bodø/Glimt í gær og lagði upp þriðja mark liðsins. Hann er á sínu öðru tímabili hjá liðinu.
Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Í beinni: Höttur - Tindastóll | Barist um afar mikilvæg tvö stig Körfubolti Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Handbolti Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Handbolti Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Enski boltinn „Ég er tilbúinn“ Fótbolti Fleiri fréttir Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Åge Hareide: Framtíðin er björt „Vorum svo ógeðslega nálægt þessu“ „Hann var alltaf mættur“ Einkunnir Íslands: Albert og Hákon bestir í grátlegu tapi „Vorum grátlega nálægt þessu“ Sjá meira