Handbolti

Svona eru milliriðlarnir: Barátta við heims- og ólympíumeistara um tvö sæti

Sindri Sverrisson skrifar
Elliði Snær Viðarsson og félagar unnu alla leiki sína í B-riðli en nú taka við þyngri próf og það án nokkurra af lykilmönnum íslenska liðsins.
Elliði Snær Viðarsson og félagar unnu alla leiki sína í B-riðli en nú taka við þyngri próf og það án nokkurra af lykilmönnum íslenska liðsins. Getty/Sanjin Strukic

Lemstrað lið Íslands hefur keppni í milliriðli á EM í handbolta í kvöld með leik við dönsku heimsmeistarana. En hvað er í húfi, hvað þarf til að ná lengra, og af hverju í ósköpunum kallast þetta milliriðill?

Ef að leikir Íslands við Portúgal, Holland og Unverjaland voru forrétturinn, þá er núna komið að fjórrétta aðalrétti og svo verður bara að koma í ljós hvort við fáum desert, þó að það sé því miður orðið mun ólíklegra eftir smitfréttir síðasta sólarhrings.

Á EM keppa 24 þjóðir og tólf þeirra eru núna fallnar úr leik. Liðin léku í sex fjögurra liða riðlum og tvö komust upp úr hverjum þeirra.

Núna byrjar svo keppni í tveimur sex liða riðlum sem líta svona út:

Staðan í milliriðli 1 og milliriðli 2. Liðin tóku með sér stig úr leiknum við lið sem fylgdi þeim upp úr riðlakeppninni og því er helmingur liðanna nú þegar með tvö stig, þar á meðal Ísland eftir 29-28 sigurinn á Hollandi.EHF

Liðin taka með sér stig úr leiknum við liðið sem var með þeim í fjögurra liða riðli. Þannig er Ísland nú þegar með tvö stig en Holland ekkert, vegna sigurs Íslands á Hollandi.

Tvö efstu í undanúrslit og síðast dugðu sex stig

Andstæðingar Íslands í millriðli koma úr A- og C-riðli. Tvöfaldir heimsmeistarar Danmerkur og Ólympíumeistarar Frakklands unnu alla sína leiki eins og Ísland, en Svartfjallaland og Króatía eru stigalaus.

Tvö efstu liðin komast svo í undanúrslit, gegn tveimur efstu liðunum úr hinum milliriðlinum. Þá leika liðin sem enda í 3. sæti riðlanna um 5. sæti mótsins.

  • Leikir Íslands í milliriðli EM eru eftirfarandi:
  • 20. janúar, kl. 19.30:
  • Danmörk – Ísland
  • 22. janúar, kl.17:
  • Frakkland – Ísland
  • 24. janúar, kl. 14.30:
  • Ísland – Króatía
  • 26. janúar, kl. 14.30:
  • Ísland – Svartfjallaland

Það er illa hægt að segja til um hve mörg stig Ísland þarf til að komast áfram í undanúrslitin, og ljóst er að verkefnið er nær ómögulegt nú þegar kórónuveiran hefur herjað á liðið. 

Ísland er þó komið með tvö stig og á síðasta Evrópumóti dugði Slóveníu að fá sex stig til að komast áfram úr undanriðli Íslands og í undanúrslitin. Ísland endaði þá neðst í milliriðlinum, með tvö stig.

Í fínum málum fyrir HM í Póllandi og Svíþjóð

Þrjú efstu liðin á EM fá ekki bara verðlaun heldur tryggja þau sér sæti á HM á næsta ári, sem fram fer í Póllandi og Svíþjóð. Það að Ísland sé í hópi 12 efstu liða á EM hefur þegar tryggt liðinu sess í efri styrkleikaflokki í umspilinu um sæti á HM nái liðið ekki verðlaunasæti á EM.

Að lokum verður sá sem þetta skrifar að viðurkenna að hann veit ekki af hverju það sem á ensku kallast „main round“ er kallað milliriðlakeppni á íslensku. Aðalriðlakeppni væri kannski betra orð. Alla vega tekur ekki við önnur riðlakeppni eftir þessa heldur undanúrslitaleikir eins og fyrr segir.


Tengdar fréttir

Strákarnir sem þurfa að fylla í stóru skörðin

Líf, ertu að grínast? Einmitt þegar íslenska karlalandsliðið í handbolta var á uppleið og með gríðarlega mikinn meðbyr duttu fimm leikmenn út vegna veiruskrattans. En hverjir koma til með að fylla í skörð fimmmenninganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×