Eftirlifandi sprengjuárásarinnar í Brussel fær ekki alþjóðlega vernd Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. september 2020 23:29 Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í dag að íslenska ríkinu bæri ekki að veita manninum alþjóðlega vernd hér á landi. Vísir/Vilhelm
Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfum manns sem kært hafði niðurstöðu stjórnvalda um þriðju umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi. Í öllum þremur umsóknum komust stjórnvöld að þeirri niðurstöðu að mál hans yrði ekki tekið til efnismeðferðar heldur skyldi vísa honum úr landinu og endursenda til Belgíu þar sem hann hafði þegar lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þessari niðurstöðu á mánudaginn var en fram kemur í dómsúrskurðinum að maðurinn hafi lýst því að honum hafi upphaflega verið hent út af heimili foreldra sinna þegar hann var barn og hafi eftir það búið á götum Indlands. Hryðjuverkaárásin á flugvöllinn í Brussel fletti ofan af kynhneigð mannsins Hann hafi árið 2014 yfirgefið heimaland sitt og dvalist meðal annars í Belgíu, Króatíu og Póllandi síðan þá. Þegar maðurinn bjó í Belgíu stundaði hann þar verkfræðinám í kaþólskum skóla. Hann hafi hins vegar orðið fyrir sprengjuárás hryðjuverkamanna á flugvellinum í Brussel þann 22. mars 2016 þegar hann var á leið til Svíþjóðar með kærastanum sínum. Hann lýsir því að hann hafi slasast illa, misst tennur og hlotið innvortis meiðsli en atvikið hafi flett ofan af sambandi hans og kærasta hans og hafi það leitt til þess að hann hafi orðið fyrir ofsóknum, niðurlægingu og áreiti af hálfu fjölskyldu kærasta síns. Þegar upp hafi komist um kynhneigð hans hafi hann einnig orðið fyrir áreiti á stúdentagörðunum þar sem hann bjó og hafi þetta haft gríðarleg áhrif á hann andlega og hann hefi síðan verið greindur með áfallastreituröskun. Maðurinn kom fyrst hingað til lands haustið 2017 og vann hann sjálfboðavinnu fyrir Rauða krossinn og lauk námskeiði í íslensku hjá Dósaverksmiðjunni. Hann var svo endursendur til Belgíu í september 2018 en hann segist hafa verið skilinn eftir á flugvellinum án farmiðans og því ekki getað sótt farangur sinn. Hann hafi neyðst til að gista í almenningsgarði í Brussel þar sem honum hafi verið nauðgað. Það sé annað meiriháttar áfallið sem hann hafi orðið fyrir í Belgíu. Hefur sótt þrisvar um alþjóðlega vernd hér á landi Hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 12. september 2017 en þann 8. desember sama ár komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að umsókn hans yrði ekki tekin til efnislegrar meðferðar og hann skyldi endursendur til Belgíu. Þann 10. apríl 2018 staðfesti kærunefnd útlendingamála niðurstöðu Útlendingastofnunar og var maðurinn fluttur til Belgíu þann 4. september 2018. Maðurinn sótti aftur um alþjóðlega vernd hér á landi þann 13. september 2018 og tók Útlendingastofnun ákvörðun þann 5. nóvember um að umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar. 12. desember 2018 staðfesti kærunefnd útlendingamála þá ákvörðun og var hann fluttur til Belgíu þann 14. febrúar 2019. Maðurinn lagði fram þriðju umsóknina um alþjóðlega vernd hér á landi þann 18. febrúar 2019 og er það meðferð stjórnvalda á þeirri umsókn sem dómur héraðsdóms fjallar um. Við nánari athugun kom í ljós að fingraför mannsins voru í gagnagrunni Eurodac og höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Belgíu. Íslensk yfirvöld sendu þann 4. mars sama ár beiðni um viðtöku mannsins og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Belgíu. Belgísk yfirvöld samþykktu níu dögum síðar að taka við manninum á grundvelli Dyflinarreglugerðarinnar.
Dómsmál Hælisleitendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi og Faxaflóa Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Sjá meira