Tamoxifen Mylan ófáanlegt að minnsta kosti fram á mitt ár Hólmfríður Gísladóttir skrifar 25. janúar 2023 12:22 Lyfjaskortur hefur margsinnis komið upp á Íslandi síðustu ár, meðal annars skortur á krabbameinslyfjum. Þetta er til að mynda ekki í fyrsta sinn sem Tamoxifen Mylan er ófáanlegt hér á landi. Krabbameinslyfið Tamoxifen Mylan 20 mg. hefur verið ófáanlegt á landinu síðan 25. apríl í fyrra. Lyfið er meðal annars notað við brjóstakrabbameini og til draga úr líkum á endurkomu þess en það er ekki væntanlegt aftur til landsins fyrr en mögulega um mitt ár.
Fjallað er um lyfjaskortinn í minnisblaði frá heilbrigðisráðuneytinu en um er að ræða svar ráðuneytisins við fyrirspurn velferðarnefndar Alþingis frá 18. janúar síðastliðnum. Skorturinn hefur valdið nokkrum kvíða hjá sjúklingum hér á landi og vildi nefndin fá að vita hvers vegna lyfið hefði ekki verið fáanlegt, til hvaða úrræða hefði verið gripið og hvenær búast mætti við að lyfið yrði fáanlegt á ný. Í minnisblaðinu segir að lyfið sé flutt inn til Íslands frá Danmörku af Icepharma. Þar hafi verið birgðaskortur, þar sem yfirvöld hefðu neitað að heimila sölu lyfsins eftir að pakkningum var breytt. Þykja nýju pakkningarnar ekki uppfylla gæðakröfur um rekjanleika pakkninga. „Icepharma hefur unnið að því að leita allra leiða til að fá birgðir frá markaðsleyfishafa og er í stöðugum samskiptum vegna þessa. Markaðsleyfishafinn hefur ekki getað gefið nákvæma dagsetningu á næstu sendingu en vonast er eftir að það verði um mitt þetta ár,“ segir í minnisblaðinu. Þá segir að jafnvel þótt Tamoxifen frá Mylan sé ófáanlegt þá hafi verið hægt að fá tamoxifen frá öðrum framleiðendum. Lyfjastofnun hefði til að mynda í ágúst síðastliðnum heimilað lyfjafræðingum í apótekum að breyta lyfjaávísunum lækna fyrir Tamoxifen Mylan í undanþágulyfið Tamoxifen 20 mg. „Til viðbótar við þetta undanþágulyf eru þrjár aðrar tegundir af tamoxifen fáanlegar hjá heildsala til að koma til móts við þá lyfjanotendur sem ekki geta nýtt sér ofangreint undanþágulyf. Á Landspítalanum hefur undanþágulyfið Tamoxifen Sandoz 20 mg. 100 stk. og Tamoxifen Wockhard 10 mg. 30 stk. og 20 mg. 30 stk. verið afgreitt til sjúklinga.“ Lyfjaskortur hefur margsinnis komið upp á Íslandi síðustu ár, meðal annars skortur á krabbameinslyfjum. Þetta er til að mynda ekki í fyrsta sinn sem Tamoxifen Mylan er ófáanlegt hér á landi. Þá ber að geta þess að það getur valdið sjúklingum vandræðum þegar ákveðið lyf fæst ekki, jafnvel þótt sambærilegt lyf sé í boði, þar sem aukaverkanir geta komið fram vegna annarra innihaldsefna.
Lyf Heilbrigðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi og Faxaflóa Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Sjá meira