Alvarleg líkamsárás átti sér stað í Borgarnesi á mánudag og voru bæði meintur árásarmaður og þolandi fluttir á sjúkrahús. Þar liggja þeir enn og er rannsókn málsins á afar viðkvæmu stigi, að sögn Jóns Sigurðar Ólasonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Vesturlandi.
Maðurinn sem varð fyrir árásinni er á sextugsaldri og hlaut hann alvarlega áverka. Meintur árásarmaður hlaut einnig alvarlega áverka og voru þeir því báðir fluttir á sjúkrahús. Þeir þurftu þó ekki á gjörgæslumeðferð að halda.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu enda rannsókn þess í fullum gangi, að sögn Jóns.