Lífið

„Kom rosalega auðveldlega til mín“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Selma fór um víðan völl í viðtalinu við þau Svavar Örn og Evu Laufey. 
Selma fór um víðan völl í viðtalinu við þau Svavar Örn og Evu Laufey. 

Selma Björnsdóttir frumflutti nýtt lag í útvarpsþættinum Bakaríið á Bylgjunni á laugardaginn. Þetta er fyrsta lagið sem Selma gefur út í tíu ár.

Í viðtalinu fór Selma einnig yfir síðastliðið ár sem var aðeins öðruvísi hjá henni vegna samkomutakmarkana.

Hún hafði samt sem áður nóg að gera og var til að mynda að vinna umtalsvert fyrir Netflix, hún sá um leikaraval fyrir Ófærð 3 og Kötlu. Selma lék einnig í sjónvarpsþáttaröðinni Verbúðin. Í framhaldinu kviknaði hugmyndin að gleðileiknum Bíddu bara.

„Þetta lag samdi ég um leið og við vorum búnar að ákveða að semja sjálfar,“ segir Selma. Selma, Björk Jakobsdóttir og Salka Sól Eyfeld sömdu gleðileikinn, bæði handrit og lögin.

Ekkert gefið út í tíu ár

„Við sömdum öll lögin sjálf og fengum Karl Olgeirsson með okkur. Ég settist niður með ukulele-ið mitt og ákvað að semja. Ég hef ekki gefið neitt út í tíu ár og hef meira og minna verið í leikhúsinu. Það var eitt af markmiðunum sem ég setti mér fyrir þetta ár, að gefa út nokkur lög.“

Selma segir að það hafi því verið frábært að fá pressuna að verða semja fyrir leiksýninguna.

„Lagið kom rosalega auðveldlega til mín og í raun bara í einni beit.“

Lagið heitir Undir stjörnum en hér að ofan má hlusta á lagið. Að neðan er spjallið við Selmu í heild sinni. 

Undir lokin mætti Hvítvínskonan sjálf og ræddi við þáttastjórnendur og Selmu. Óhætt er að segja að samtalið hafi breyst með komu Hjálmars Arnar grínista í hlutverki hvítvínsdrekkandi konu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×