Færa átta liða úrslit Afríkumótsins eftir að troðningur olli átta dauðsföllum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. janúar 2022 22:31 Olembe-leikvangurinn var byggður fyrir Afríkumótið. Vísir/Getty Leikur í átta liða úrslitum Afríkumótsins í fótbolta sem átti að fara fram á Olembe-leikvanginum næstkomandi sunnudag hefur verið færður eftir að troðningur fyrir utan leikvanginn varð átta manns að bana í gær.
Mikill áhugi var fyrir leik Kamerún og Kómoreyja sem fram fór á Olembe-leikvanginum í gær reyndi fjöldinn allur af fólki að komast inn á leikvanginn með skelfilegum afleiðingum. Samkvæmt heimildum BBC létust í það minnsta átta í troðningnum og 38 til viðbótar slösuðust, þar af sjö alvarlega. Meðal látinna voru tvö börn, átta og fjórtán ára. Forseti afríska knattspyrnusambandsins CAF heimsótti slasaða stuðningsmenn á spítala í dag, ásamt því að skoða slysstaðinn. Hann segist harma það sem gerðist og að grípa þurfi til aðgerða til að koma í veg fyrir að atvikið endurtaki sig. „Það er okkar skylda að komast að því hvað gerðist nákvæmlega og enn mikilvægara er að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að svona lagað gerist aftur,“ sagði Patrice Motsepe, forseti CAF. „Það var mikið að sem hefði verið hægt að sjá fyrirfram. Þegar fólk tapar lífinu þá er eðlilegt að verða reiður og krefjast útskýringa og loforða um að svona lagað komi ekki fyrir aftur.“ Olembe-leikvangurinn tekur 60.000 manns í sæti, en hann var nýlega byggður sérstaklega fyrir Afríkumótið. Þó mátti leikvangurinn aðeins taka við 80 prósent af leyfilegum hámarksfjölda vegna kórónuveirufaraldursins. Opnunarhátið mótsins var haldin á vellinum og þá á einnig að leika annan undanúrslitaleikinn þar, sem og úrslitaleikinn sjálfan. Þá átti einnig að leika einn leik í átta liða úrslitum á leikvanginum næstkomandi sunnudag, en sá leikur hefur verið færður á Ahmadou Ahidjo-leikvanginn í Yaounde, höfuðborg Kamerún.
Afríkukeppnin í fótbolta Kamerún Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti NFL-stjarna á tíu börn og hefur eignast fjögur síðasta árið Sport Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti Fleiri fréttir Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Sjá meira