Jón Þór: Fórum að gera hlutina hver í sínu horni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. maí 2022 22:05 Jón Þór Hauksson gefur skipanir. vísir/hulda margrét Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, sagði að þótt það hafi verið svekkjandi að lenda undir blálok fyrri hálfleik hafi annað mark Vals sett hans menn út af laginu. ÍA tapaði 4-0 fyrir Val á Hlíðarenda í kvöld. „
Mér fannst annað markið gera það. En það sem við tökum út úr þessum leik er virkilega öflug frammistaða í fyrri hálfleik. Við hefðum getað verið komnir yfir áður en þeir skoruðu,“ sagði Jón Þór í samtali við Vísi eftir leik. „Auðvitað er þungt og erfitt að fara inn í hálfleikinn með mark í andlitinu. Við annað markið riðlaðist svo allur okkar leikur og við fórum að gera hlutina hver í sínu horni og við það splundraðist liðið. Gott lið eins og Valur nýtir sér það og þeir gerðu það virkilega vel.“ En hvað hefði Jón Þór viljað sjá sitt lið gera betur í seinni hálfleik? „Ég held við hefðum getað brugðist betur við. Auðvitað var áfall að fá á sig mark í lok fyrri hálfleiks. Í hálfleik eru menn svo að járna sig upp og eru virkilega staðráðnir í að koma til baka en fá svo annað markið á sig í staðinn. Ég hefði viljað sjá okkur gera betur í þeirri stöðu, þétta liðið í staðinn fyrir að gera hlutina í sitt hvoru lagi út um allan völl,“ svaraði Jón Þór. Þrátt fyrir að ÍA hafi tapað tveimur leikjum í röð með fjögurra marka mun er engan bilbug á Jóni Þór að finna. „Blikar voru frábærir í leiknum á laugardaginn og stundum þarftu bara að bera virðingu fyrir því. Við erum að spila við tvö frábær lið og Valsmenn nýttu sér það frábærlega þegar leikur okkar riðlaðist. Við látum þetta ekki slá okkur út af laginu,“ sagði Jón Þór að lokum.
Besta deild karla ÍA Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Körfubolti HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Körfubolti Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Körfubolti Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Fótbolti Fleiri fréttir „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum FH-ingar kynna besta lið sögunnar Stórleikur á Samsung-vellinum og meistararnir fara í Mosó Rúnar Már fann neistann Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Keflavík 4-2 | Nýliðarnir nældu í sigur og eru enn ósigraðir „Ég vil vera þarna uppi að berjast um flest mörk“ „Held að Katla mín fyrirgefi mér þetta alveg“ Uppgjörið og viðtöl: Þór/KA - Þróttur 2-1 | Sandra María algjörlega óstöðvandi Uppgjör: Valur - Víkingur 7-2 | Sýning hjá Amöndu og Nadía skoraði í stórsigri Valskvenna Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Skúrkurinn endaði sem hetjan FH fékk tvær sektir frá KSÍ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ „Þú veist alveg svarið við þessu“ Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Sjá meira