Ótrúleg tölfræði Ómars Inga eftir landsleikjahléið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. apríl 2021 13:01 Ómar Ingi Magnússon hefur skorað eins og óður maður fyrir Magdeburg síðustu vikurnar. getty/Hendrik Schmidt Það er engu logið að Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður í handbolta, hafi verið óstöðvandi að undanförnu. Eftir landsleikjahléið hefur hann verið markahæstur hjá Magdeburg í öllum leikjum liðsins nema tveimur.
Gamla stórveldinu Magdeburg hefur vegnað vel á tímabilinu, er í 4. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og komið með annan fótinn í undanúrslit Evrópudeildarinnar. Það er ekki síst fyrir tilstilli Ómars Inga sem hefur leikið sérlega vel á sínu fyrsta tímabili hjá Magdeburg. Hann er þriðji markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar með 162 mörk og markahæstur Magdeburg-manna í Evrópudeildinni með 72 mörk. Þá eru ótaldar allar stoðsendingarnar sem Ómar Ingi gefur á samherja sína. Ómar Ingi hefur verið sérstaklega öflugur eftir keppni hófst á ný eftir landsleikjahléið í byrjun síðasta mánaðar. Selfyssingurinn hefur skorað 63 mörk í átta leikjum eftir landsleikjahléið, eða 7,9 mörk að meðaltali í leik. Í helmingi þessa leikja hefur hann skorað níu mörk eða meira. Ómar Ingi kom til Magdeburg síðasta sumar eftir fjögur tímabil í Danmörku, tvö með Århus og tvö með Álaborg. Hann varð meistari með síðarnefnda liðinu.getty/Peter Niedung Ómar Ingi hefur verið markahæstur í liði Magdeburg í sex af átta leikjum liðsins eftir landsleikjahléið. Hann var ekki markahæstur í 29-24 sigri á Füchse Berlin í þýsku úrvalsdeildinni 21. mars og skoraði svo bara tvö mörk í 35-24 sigri á Eurofarm Palister í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Hann spilaði reyndar lítið enda Magdeburg með átta marka forskot eftir fyrri leikinn. Ómar Ingi hefur skorað tólf mörk í síðustu tveimur leikjum Magdeburg, 26-33 sigri á Nordhorn á sunnudaginn og 28-34 sigri á Kristianstad í Íslendingaslag í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar á þriðjudaginn. Hann gaf einnig fimm stoðsendingar gegn sænska liðinu og kom því með beinum hætti að sautján mörkum Magdeburg. Auk þess að vera þriðji markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar er Ómar Ingi í 18. sæti yfir þá leikmenn sem hafa gefið flestar stoðsendingar, eða 58 talsins. Þess má geta að Ómar Ingi var stoðsendingakóngur dönsku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2018-19. Hann gaf þá 112 stoðendingar en næsti maður á lista gaf 88. Magdeburg hefur góða reynslu af örvhentum íslenskum skyttum en sem kunnugt er lék Ólafur Stefánsson með liðinu við góðan orðstír um aldamótin. Magdeburg varð þá þýskur meistari og vann Meistaradeildina og EHF-bikarinn undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Næsti leikur Magdeburg er gegn Melsungen, liði Guðmundar Guðmundssonar, á sunnudaginn. Á þriðjudaginn er svo komið að seinni leiknum gegn Kristianstad.
Þýski handboltinn Mest lesið Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Enski boltinn Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Körfubolti Góður leikur Tryggva skilaði engu Körfubolti Dagskráin í dag: Fyrsti grasleikur sumarsins, úrslitakeppni í Subway og svo mikið meira Sport Sigrar hjá Íslendingaliðunum Handbolti Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Fótbolti Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Enski boltinn Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Fleiri fréttir Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ Sjá meira