Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 3 árum.

Losna ekki úr gæsluvarðhaldi fyrir að hafa þegið mútur frá Samherja

Nú er ljóst að Bern­h­ard Es­au og Tam­son Hatuikulipi verða ekki látn­ir laus­ir úr gæslu­varð­haldi í Namib­íu. Þeir sitja inni grun­að­ir um að hafa þeg­ið mútu­greiðsl­ur frá Sam­herja sem Þor­steinn Már Bald­vins­son kann­ast ekki við.

Losna ekki úr gæsluvarðhaldi fyrir að hafa þegið mútur frá Samherja
Fá ekki lausn gegn tryggingu Þeir Bernhard Esau og Tamson Hatuikulipi verða ekki lausir úr gæsluvarðhaldi gegn tryggingu þrátt fyrir beiðni þar. Þeir eru sakaðir um að hafa þegið mútur frá Samherja. Esau sést hér með Þorsteini Má Baldvinssyni í Namibíu.

Bernhard Esau og Tamson Hatuikulipi munu ekki verða látnir lausir úr gæsluvarðhaldi sem þeir sitja í, grunaðir um að hafa tekið við mútugreiðslum frá Samherja auk fleiri brota. Þetta er niðurstaða dómstóls í höfuðborg Namibíu, Windhoek, frá því fyrr í dag. Beiðni þeirra um að vera látnir lausir gegn tryggingu var þá vísað frá dómi. Frá þessu er greint í namibískum fjölmiðlum

Réttarhöldin hefjast í apríl

Esau, sem er fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu, og Hatuikulipi, hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því í lok árs 2019, skömmu eftir að Samherjamálið í Namibíu kom upp. Réttarhöld yfir þeim í tveimur aðskildum en þó tengdum málum munu hefjast í apríl. Komið hefur fram að í málunum verði þeir ákærðir fyrir að hafa þegið mútur frá Samherja, fyrir að hafa misnotað opinbert embætti sem og fyrir peningaþvætti. 

Þrír íslenskir núverandi og fyrrverandi starfsmenn Samherja verða einnig ákærðir í Namibíu auk félaga Samherja þar í landi. 

„Ég hafði ekki vitneskju um neinar óeðlilegar greiðslur ef þær áttu sér stað á annað borð.“
Þorsteinn Már Baldvinsson

Kannast ekkert við „óeðlilegar greiðslur“

Samtímis og að þetta á sér stað í Namibíu - nú er ljóst að þeim Esau og Hatuikulipi verður ekki sleppt gegn tryggingu áður en réttarhöldin í Samherjamálinu hefjast - staðhæfir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, að samkvæmt því sem hann best viti hafi engar „óeðliegar greiðslur“ átt sér stað í Namibíu og að ef að þær hafi átt sér stað þá hafi hann ekki vitað um þær.  Þetta kom fram í viðtali við Þorstein Má í Fréttablaðinu fyrr í vikunni: „Við teljum að þessar ásakanir séu ekki á rökum reistar og ég hafði ekki vitneskju um neinar óeðlilegar greiðslur ef þær áttu sér stað á annað borð.“ 

Sagði Þorsteinn Már að ef ólögmætar greiðslur hafi átt sér stað þá væru þær á ábyrgð Jóhannesar Stefánssonar: „Hafi greiðslur átt sér stað sem eru ólögmætar þá voru þær á ábyrgð Jóhannesar Stefánssonar.“ Jóhannes Stefánsson er hins vegar ekki einn þeirra starfsmanna Samherja sem ákæruvaldið í Namibíu hyggst ákæra í málinu.

Ef Þorsteinn Már hefur rétt fyrir sér um mútugreiðslurnar þá skilur ansi mikið á milli hans og ákæruvaldsins í Namibíu hvað varðar ábyrgðina á mútugreiðslunum. Þá er einnig ljóst, ef Þorsteinn Már hefur rétt fyrir sér, að Bernhard Esau og aðrir namibískir sakborningar í málinu hafa setið allan þennan tíma í gæsluvarðhaldi að ósekju.  Þá er einnig ljóst að ef þetta er rétt þá eru ásakanir ákæruvaldsins í Namibíu gegn Samherja byggðar á sandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Samherji gegndi lykilhlutverki í þessu hneyksli“ - Opið bréf til forsætisráðherra frá Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

„Sam­herji gegndi lyk­il­hlut­verki í þessu hneyksli“ - Op­ið bréf til for­sæt­is­ráð­herra frá Namib­íu

Slétt­um fjór­um ár­um eft­ir að ljóstr­að var upp um fram­ferði Sam­herja í Namib­íu kall­ar leið­togi namib­ísku stjórn­ar­and­stöð­unn­ar eft­ir því að ís­lensk stjórn­völd taki ábyrgð, í opnu bréfi til for­sæt­is­ráð­herra Ís­lands. Hundrað millj­óna rík­is­styrk­ur til Sam­herja vek­ur reiði í Namib­íu.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lög­mað­ur namib­ískra sjó­manna við Sam­herja: „Borg­ið það sem þið skuld­ið þeim“

Lög­mað­ur skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmd­ar voru bæt­ur vegna ólög­legr­ar upp­sagn­ar Sam­herja­fé­lags í Namib­íu, kall­ar eft­ir því að Ís­lend­ing­ar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namib­íu. Það stand­ist enga skoð­un að Sam­herji hafi ekki vit­að af mál­inu. For­stjóri Sam­herja lof­aði því að fyr­ir­tæk­ið myndi sjá til þess að stað­ið yrði við all­ar skuld­bind­ing­ar og sér­stak­lega hug­að að sjó­mönn­um sem starf­að hefðu fyr­ir fé­lag­ið.
Namibískir sjómenn stefna Samherjamanni eftir tveggja ára bið eftir bótum
FréttirSamherjaskjölin

Namib­ísk­ir sjó­menn stefna Sam­herja­manni eft­ir tveggja ára bið eft­ir bót­um

Á þriðja tug namib­ískra sjó­manna sem voru dæmd­ar bæt­ur vegna ólög­mætr­ar upp­sagn­ar Sam­herja­fé­lags í Namib­íu, hafa enn ekki feng­ið þær greidd­ar. Lög­mað­ur þeirra gagn­rýn­ir for­svars­menn Sam­herja fyr­ir að gang­ast ekki við ábyrgð sinni og hef­ur nú stefnt ein­um stjórn­anda Sam­herja og dótt­ur­fé­lagi þess, fyr­ir dóm í Namib­íu.
Inga þakkar Samherja fyrir en telur að kvótakerfið hafi lagt landið í auðn
FréttirSamherjaskjölin

Inga þakk­ar Sam­herja fyr­ir en tel­ur að kvóta­kerf­ið hafi lagt land­ið í auðn

Inga Sæ­land, formað­ur Flokks fólks­ins, seg­ist hafa slíðr­að sitt póli­tíska sverð þeg­ar hún söng á Fiski­deg­in­um mikla á Dal­vík um helg­ina. Hún skrif­ar þakk­ar­grein í Mogg­ann í dag og þakk­ar Sam­herja fyr­ir Fiski­dag­inn. Sam­kvæmt Ingu kom hún ekki fram á Fiski­deg­in­um sem stjórn­mála­mað­ur held­ur sem mann­eskja í sum­ar­fríi.

Mest lesið

Domino's-þjóðin Íslendingar
2
Skýring

Dom­ino's-þjóð­in Ís­lend­ing­ar

Guð­fað­ir og stofn­andi Dom­ino´s á Ís­landi, Birg­ir Bielt­vedt, hef­ur enn og aft­ur selt hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu og er út­gerð­ar­kon­an Guð­björg Matth­ías­dótt­ir nú orð­inn stærsti hlut­haf­inn. Birg­ir er rauði þráð­ur­inn í æv­in­týra­legri sögu pitsu­fyr­ir­tæk­is­ins á Ís­landi sem hef­ur kom­ið sér í ein­staka mark­aðs­stöðu á skyndi­bita­mark­að­in­um á Ís­landi.
„Ótrúlega falleg framtíðarsýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræðisaldri
6
ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrú­lega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sín­um á ní­ræðis­aldri

Rann­veig Haf­berg hélt að hún gæti aldrei byrj­að að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu mataræði og hleyp­ur vænt­an­lega sitt tí­unda of­ur­m­ara­þon á Lauga­veg­in­um í sum­ar. Ey­steinn Haf­berg, fað­ir henn­ar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eft­ir hjarta­áfall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í ís­lenska hlaupa­heim­in­um. Móð­ir henn­ar er líka byrj­uð að hlaupa. Og barna­börn­in.
Eigi að læra íslensku áður en fjölskyldan kemur
9
FréttirFlóttamenn

Eigi að læra ís­lensku áð­ur en fjöl­skyld­an kem­ur

Meiri­hluti alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar tel­ur efni til að víkka að­eins skil­yrði til fjöl­skyldusam­ein­ing­ar í um­deildu út­lend­inga­frum­varpi. Skil­yrði til und­an­þágu eru þó frem­ur ströng: Flótta­mað­ur­inn sem sæk­ir um fjöl­skyldusam­ein­ingu gæti feng­ið und­an­þágu ef hann hef­ur á einu ári lært ís­lensku, ver­ið virk­ur á vinnu­mark­aði í átta mán­uði, hef­ur til­tækt íbúð­ar­hús­næði fyr­ir fjöl­skyld­una og get­ur fram­fleytt sér.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
5
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
8
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
5
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
8
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu