Anton Kristinn segir ekkert til í fullyrðingu um 50 milljóna króna sekt Birgir Olgeirsson og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa 15. september 2021 14:34 Anton Kristinn Þórarinsson sagði það hafa verið einungis orðróm að vinna ætti honum mein vegna máls sem tengist upplýsingagjöf til lögreglu. vísir Anton Kristinn Þórarinsson segir ekki eiga við rök að styðjast að aðilar í undirheimum hafi ætlað að sekta hann um tugi milljóna króna. Hann þvertekur fyrir að hafa vitað af fyrirætlunum Angjelin Sterkaj um að gera Armando Beqirai mein. Hefði hann vitað það hefði hann tekið fyrir það.
Við aðalmeðferð Rauðagerðismálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sagði Anton það hefði ekki átt við rök að styðjast að Armando Beqirai og félagi hans Goran Kristján Stojanovic hafi sett á hann sekt sem hljóðaði samtals upp á 50 milljónir króna. Angjelin Sterkaj, sem hefur játað að hafa skotið Armando til bana í Rauðagerði í febrúar síðastliðnum, sagði við aðalmeðferð málsins á mánudag að Armando og Goran hefðu viljað 25 milljónir hvor frá Antoni. Angjelin sagði Armando og Goran hafa beðið sig um að taka börn Antons Kristins til að setja pressu á hann að greiða sektina. Angjelin sagðist hafa neitað því og þá hafi upphafist miklar deilur sem enduðu með því að Angjelin skaut Armando níu sinnum með skammbyssu með hljóðdeyfi við heimili Armando í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar síðastliðinn. Kolbrún Benediktssdóttir, varahéraðssaksóknari sem sækir málið, spurði Anton Kristinn hvort eitthvað væri til í þessu að Armando og Goran hafi ætlað að setja sekt á Anton. „Ég tjekkaði á því. Það reyndist ekki eiga við rök að styðjast,“ svaraði Anton. Hann sagði að Angjelin hefði verið náinn vinur sinn og hann hefði kannast lítillega við Armando. Kolbrún spurði Anton hvort hann hefði eitthvað haft með árásina á Armando að gera. „Nei, hefði ég vitað þetta hefði ég tekið fyrir að þetta yrði gert,“ svaraði Anton. Anton sagðist fyrir morðið hafa fengið símtal frá Goran sem hafi beðið hann um að losa sig við Angjelin vegna deilna þeirra á milli sem Anton kannaðist ekki við. Anton Kristinn Þórarinsson ásamt eiginkonu sinni Ellen Egilsdóttur á leið í dómsal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.Vísir Af gögnum í máli lögreglufulltrúa sem lekið var á Internetið í upphafi árs, og mikið var fjallað um í fjölmiðlum kom fram að Anton Kristinn hafi um tíma verið uppljóstrari hjá lögreglu. Kolbrún spurði hvort Anton hafi orðið fyrir aðkasti eða hótunum vegna þess. „Nei, það var orðrómur um það,“ svaraði Anton. Spurður hvort hann hafi gripið til ráðstafana svaraði Anton því neitandi en nefndi að hann hefði fengið vini til landsins sem hann reddaði störfum í byggingarvinnu. Kolbrún spurði hvort rétt væri að Goran og Armando hafi ætlað að gera Antoni eitthvað vegna upplýsingagjafarinnar. „Það var orðrómur löngu á undan en staðreyndin er sú að það var ekki,“ svaraði Anton en hann sagðist hafa heyrt slíkar sögusagnir frá Angjelin. Hann sagðist ekki hafa vitað af því að Angjelin ætti byssuna eða hvernig hann hefði komist yfir hana. Anton kvaðst aldrei hafa séð téða byssu né komið við hana. Ellen Egilsdóttir, eiginkona Antons, gaf skýrslu fyrir dómi að loknum vitnisburði Antons. Áfram verður fjallað um málið á Vísi.
Morð í Rauðagerði Dómsmál Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Fleiri fréttir Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Sjá meira